Vesturferðin - ritskoðuð!
Skrifað mánud. 11. júní 2007 - 02:09Við strákarnir lögðum af stað í heljarins ævintýr núna um helgina, en leið okkur lá einmitt í Skálmarnes á Vestfjörðum. Afi Helga á risa stóra lóð þarna og eiga mamma og pabbi Helga bústað þarna, sem við gistum hjá. Þeir sem voru þarna voru: ég, Gummi, Gaui bro, Helgi, Elín kærastan hans, Palli, Halli, Jökull, Solla kærastan hans, Eva, Ásgerður, Lilja og Ási.
Ég, Helgi og Halli lögðum af stað um 7 leytið á föstudeginum, en ég fékk að fara fyrr úr vinnunni til að geta sinnt ýmislegu, þ.á.m. versla og pakka fyrir ferðina.
Um leið og við komum vestur fóru strákarnir bara beint í það að tjalda og setja upp tjaldvagninn og fellihýsið. Halli kom með tjaldvagn foreldra sinna, en Gummi dró hann á jeppa pabba síns, og svo kom Jökull með fellihýsi foreldra sinna, en hann dró það bara sjálfur.
Við sátum bara þarna úti og vorum búnir að ná í sófann góða, sem við höfum alltaf notað í þessum vesturferðum okkar. En sófinn var orðinn svolítið sjúskaður, greyið, þar sem hann var búinn að vera úti í allan vetur og meira til, en við gátum samt notað hann.

Á laugardaginn vaknaði ég mjög þunnur. Ég rölti þá á tjaldstæðið, þar sem fólkið var og settist hjá þeim og sötraði bjór. Gummi, Helgi og Gaui bro voru ógeðslega duglegir og smíðuðu grind fyrir partýtjaldið. Fáránlega flott hjá þeim!

En það er nú voða fátt minnistætt frá þessum degi/kvöldi, fyrir utan það að ég lenti á trúnó með Lilju inni í bílnum hennar og ég var næstum því búinn að deyja þegar Jökull skaut á mig úr fjarska (en hitti sem betur fer ekki) með kartöflubyssunni sinni. Þetta var bara veðmál um að hann gæti ekki hitt.

Þetta kvöld endaði samt í algjöru rugli, þar sem tveir vitleysingar tóku sig til og fóru að keyra blindfullir út á tanga, sem er í nokkurra kílómetra fjarlægð frá staðnum sem við vorum á. Ég ætla ekki að nafngreina þessa einstaklinga, en þessir aðilar tóku með sér farþega, sem hefðu getað orðið fórnarlömb þessarar vitleysu. Þegar maður hugsar út í þetta er fátt heimskulegra en að gera þetta. Þessir aðilar voru fullir og hefðu getað keyrt á eitthvað, keyrt út af, og ýmislegt fleira, og hefðu getað ollið miklu slysi á bæði sér sjálfum og þessum saklausu farþegum! Það er jú frekar langt í spítala þarna og ekki hlaupið í að fá sjúkraliða á vettvang, þannig ég vill undirstrika hversu heimskulegt þetta var!
Af eintómum áhyggjum gat ég ekki beðið lengur eftir fólkinu, þar sem ég var bæði blindfullur og þreyttur, þannig ég ákvað bara að fara að sofa. Ég rölti aftur inn í bústað og dó í sama rúmi og ég var í nóttina áður.
Á sunnudaginn vaknaði ég ekkert þunnur og rölti aftur til fólksins. Þau voru þá byrjuð að taka saman, en Helgi og Gummi fóru stuttu eftir að ég vaknaði, þar sem þeir þurftu að drífa sig í bæinn til að ná að geta keppt í fótboltaleik kl 6.
Ferðin heim gekk vel fyrir sig. Við stoppuðum örstutt í Bjarkalundi, þar sem Jökull tók bensín. Svo keyrðum við bara áfram og stoppuðum svo í Hyrnunni til að borða. Við lögðum af stað glorhungraðir heim og biðum því í ofvæni eftir því að komast í Hyrnuna til að fá okkur hamborgara. Þessi hamborgari var algjör viðurstyggð og auðvitað þurfti ég að fá matinn minn lang síðastur þannig ég var einn að borða á meðan allir voru að bíða eftir mér.
En ég er allavega kominn heim. Home sweet home!
En svona í lokin langar mig bara að segja að það bráðvantaði einn aðila þarna. Mér þykir óendanlega vænt um þennan aðila og þrátt fyrir smá drama og leiðinda síðustu helgi, vil ég ekki að við slítum vináttu okkar.
En ég ætla að segja þetta ágætt í bili, og þakka bara öllum fyrir ferðina!
Myndirnar úr ferðinni má svo finna hér!
Bætt við 15.06.07 21:31:
Vegna ýmissa erfiðleika innan vinahópsins vegna þessarar færslu hef ég ákveðið að ritskoða þessa færslu, sem og að eyða vafasömum athugasemdum.

Gaui bro, Palli og Halli í sófanum góða
Á laugardaginn vaknaði ég mjög þunnur. Ég rölti þá á tjaldstæðið, þar sem fólkið var og settist hjá þeim og sötraði bjór. Gummi, Helgi og Gaui bro voru ógeðslega duglegir og smíðuðu grind fyrir partýtjaldið. Fáránlega flott hjá þeim!

Grindin sem strákarnir smíðuðu fyrir partýtjaldið
En það er nú voða fátt minnistætt frá þessum degi/kvöldi, fyrir utan það að ég lenti á trúnó með Lilju inni í bílnum hennar og ég var næstum því búinn að deyja þegar Jökull skaut á mig úr fjarska (en hitti sem betur fer ekki) með kartöflubyssunni sinni. Þetta var bara veðmál um að hann gæti ekki hitt.

Allir í góðum gír inni í partýtjaldinu

Athugasemdir (