Deila á Facebook
« First time Deco | Aðalsíða | Týndur vinur? »

Engir Bíladagar?
Skrifað miðvikud. 13. júní 2007 - 00:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fyrirkomulagið í vinnunni minni er svo lélegt að það hálfa væri nóg. Ég var að vinna í dag og það var brjálað að gera og sumarið rétt byrjað. Það var m.a.s. það brjálað að gera að ég fór einum og hálfum tíma of seint í kaffi. Svo er mesta ruglið að einn er veikur og svo eru þrír eru að fara í frí. Vá hvað ég sé fram á að komast hvorki í kaffi né mat út af álagi þarna.

En það er þá komið á hreint, það eru 99% að ég fari ekki á Bíladaga. Ég fæ ekki frí á laugardaginn vegna skorts á starfsmönnum hjá okkur, þannig ég verð annað hvort að hætta við eða þá að keyra bara til Akureyrar á laugardeginum eftir vinnu. Ég á samt ekki tjald né hef ég gistingu þarna, þannig ég veit ekki. Ef ég myndi fá gistingu á Akureyri og ferðafélaga myndi ég líklegast keyra þangað á laugardeginum.

En núna í kvöld kíkti ég bara í afmæliskaffi til systir minnar, sem er orðin 23 ára gömul. Ég vil bara enda þessa færslu á því að óska henni innilega til hamingju með afmælið.




Athugasemdir ():