Deila á Facebook
« Voða lítið að gerast | Aðalsíða | Skemmtilegasta helgin! »

Skemmtilegt kvöld
Skrifað laugard. 26. nóvember 2005 - 21:27
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, frábært kvöld í gær.

Ég byrjaði á því að vera heima til miðnættis. Svo komu Guðrún og Beta til að fá lánaðar tvær DVD myndir hjá mér. Þær fengu lánaðar Monster-in-Law og House of Wax. Seinna kom Grétar. Svo fór hann að skutla einhverju liði og ætlaði að koma strax aftur. Ég skrapp í sturtu á meðan og gerði mig fínan. Í millitíðinni kom Jökull. Svo þegar ég var búinn í sturtu, vorum við 4 bara þarna; Ég, Jökull, Beta og Guðrún. Ég og Jökull vorum að fara að djamma en Beta og Guðrún ætluðu bara að fara heim að horfa á video.
Seinna hringdi ég í Grétar og bað hann um að koma að sækja okkur. Hann var þá búinn að skutla fólkinu upp í Keiluhöll og var byrjaður í keilu með þeim. Stuttu síðar kemur hann og sækir okkur.

Við förum fyrst í Keiluhöllina Öskjuhlíð og hittum allt liðið sem er með okkur í kór. Svo vorum við þarna í smá stund á meðan þau voru að klára keiluna. Svo fórum við niður í bæ en það voru bara ákveðnir aðilar sem gátu og vildu fara niður í bæ vegna aldurs. Sem sagt þeir sem fóru niður í bæ voru: Símon, Hildur, Jökull, Grétar og ég. Símon er snillingur, algjör fokking snillingur!!!

Svo rúlluðum við niður í bæ og fórum inn á Glaumbar og það var bara fínt. Bjórinn aðeins of dýr en maður lét veskið bara hafa það. Við vorum á Glaumbar alveg heillengi og drukkum marga bjóra þar. Svo ákváðum við að kíkja eitthvað annað. Við fórum á Viktor en Símon komst ekki inn út af því að hann var ekki í sparifötunum sínum. Algjört rugl!

Þá næst fórum við á Gaukinn og þar hitti ég Óla linsu, Kollu og vinkonu hennar, Thelmu. Ég kynntist Kollu í partýi hjá Huldu. Einnig er hún vinkona Kristínar (fyrrverandi kærustunnar hans Kamils). Við vorum eitthvað að fíflast í partýinu hjá Huldu og fórum í judo keppni haugadrukkin. Hehehe, meira ruglið.
Ég, Kolla og Thelma fórum að dansa og það var rosa gaman. Seinna ákváðum við að fara eitthvað annað og prófuðum Opus en þær komust ekki inn vegna þess að dyraverðirnir trúðu ekki að þetta voru þær á myndunum á kortunum. Við fórum bara aftur á Glaumbar og vorum í dágóða stund þar.

Seinna um kvöldið hringir Jökull í mig og segir mér að þeir séu að fara. Ég kveð Kollu og fer svo út. Ég hringi svo í Jökul og spyr hann hvar þeir séu og þá eru þeir úti á Álftanesi! Ég reyni að komast aftur inn á Glaumbar en þá eru þeir búnir að loka! Ég bíð bara þarna fyrir utan heillengi og svo koma Óli og Maggi, félagar mínir. Ég spjalla við þá og við röltum á Hlöllavagninn (besti skyndibiti ever) og fáum okkur báta. Seinna koma Grétar og Jökull og skutla Magga og Óla heim. Ég fer heim, drekk 2L af vatni og fer að sofa.

En núna var ég bara að vakna kl hálf 9 sirka og sit bara hérna fyrir framan tölvuna. Ég er að spá í að fara að djamma aftur í kvöld. En það er oftast þannig að maður getur ekki lent á tveim góðum djammkvöldum í röð. Ég hef oft brennt mig á því. En ég er allavega í stuði til að gera eitthvað, sem helst innifelur bjór.

Ég vil þakka Símoni, Jökli, Grétari, Hildi og Kollu fyrir frábært kvöld í gær.




Athugasemdir ():