Deila á Facebook
« Nýja Námukortið með gallabuxnamyndinni | Aðalsíða | MySpace - gott að hafa áhrif »

17. júní helgin - ekkert sparað!
Skrifað mánud. 18. júní 2007 - 04:01
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Helgin var ágæt í stórum dráttum. Ég fór bara í bíó með Karlottu á föstudaginn, fór svo snemma að sofa út af vinnu á laugardeginum. Svo djammaði ég bara á laugardaginn, vaknaði ógeðslega seint á sunnudeginum og fór að vinna uppi í húsi og kíkti svo niður í bæ.

Á föstudaginn fór ég bara með Karlottu vinkonu minni í bíó á myndina The Invisible. Ég vann tvo miða á Topp5.is og ákvað því að skella mér á hana og bjóða einhverjum með. Þessi mynd fjallar um dreng sem er drepinn af hrekkjusvíninu í skólanum, sem vill svo til að sé stelpa. Svo fjallar öll myndin bara um hann vera að reyna að leysa morðgátuna sína, en með hjálp frá lifandi aðila tekst honum það. Þessi mynd er svolítið langdregin en engu að síður ágætis ræma til að horfa á einu sinni. Ég myndi samt ekki kaupa þessa mynd á DVD.

2/5

Ég vil bara þakka Karlottu kærlega fyrir bíóið.

Á laugardaginn fór ég bara að vinna. Ég ætlaði til að byrja með að redda mér fríi á laugardaginn og fara á Bíladaga á Akureyri, en ég fékk ekki frí og varð því að vinna. Það var svo lítið að gera í vinnunni að við gerðum mest lítið allan daginn. Þótt ótrúlegt sé þá eru alveg margir sem versla við okkur á laugardögum, vegna þess að þeir komast ekki á virkum dögum.

Mynd sem ég tók af Helga í vinnunni á laugardaginn


Eftir vinnu var ég búinn að plana að keyra til Akureyrar á Bíladaga, en ég bara nennti því engan veginn vegna þess að ég var að deyja úr þreytu. Ég fór þá bara heim og tók mig til fyrir kvöldið. Mamma hélt smá partý fyrir þá sem komust ekki í afmælið hennar á fimmtudaginn, þannig það var bara frír bjór og læti allt kvöldið.

Um kvöldið kíktum við Ella og Gummi í útskriftarveisluna hjá Hemma frænda, sem var að útskrifast úr Kennaraháskóla Íslands. Það var ágætt, en ég vil bara þakka Hemma kærlega fyrir boðið og óska honum innilega til hamingju með útskriftina. Merkum áfanga í lífinu hjá honum lokið!

Eftir það fórum við bara aftur í partýið heima og drukkum meiri bjór. Svo komu Helgi og Grétar aðeins yfir en fóru fljótt heim til Jökuls, sem var víst með eitthvað partý. Ég ákvað að sleppa því að kíkja yfir þar sem ég hafði það bara ágætt hér heima. Svo ætluðu strákarnir að kíkja aftur yfir, en þá vildi Jökull koma með, en ég leyfði honum ekki að koma, þar sem það var ákveðið áður en húsið var byggt að hann fengi ekki að koma inn þetta kvöld. Nei djók, smá skot síðan úr vesturferðinni.

Kvöldið leið og strákarnir komu ekkert yfir. Ég talaði þá við Grétar og sagðist hann vera að fara að skutla strákunum bara í bæinn og ætlaði að sleppa því að kíkja með. Mér datt í hug að bíllinn væri fullur hjá honum þannig ég sleppti því að biðja um far. Þess í stað hringdi ég bara á leigubíl, sem tók endalausan tíma að ná í, og fór bara einn niður í bæ.

Þegar ég kom niður í bæ fór ég bara í VIP röðina á Sólon. Eftir svona hálftíma bið kom Ívar út og hleypti mér inn. Ég hitti þá Karlottu og Tinnu, sem voru bara edrú. Ég skellti mér bara á barinn og fékk mér að drekka.

Svo hitti ég Svenna sem var haugafullur og var að reyna við allt sem hreyfðist - eins og alltaf bara.

Um kvöldið hitti ég stelpu á barnum sem bað mig um að bjóða sér upp á vatnsglas, og ég spurði hana hvort hún vildi ekki eitthvað annað, og þá bað hún um tequila skot og vodka í burn. Ég, herramaðurinn, bauð henni þá upp á það og fékk mér svo eitthvað sjálfur. Þegar hún var komin með drykkina réttir hún vinkonu sinni teqila skotið og sé ég þá að þetta var Jórunn, sem var með mér í grunnskóla. Spes!

Ég bauð þessari stelpu nú ekki upp á þessa drykki til að hössla hana, heldur bara út af því að hún bað mig um að bjóða sér upp á vatnsglas, sem kostar ekki krónu. Ég sé núna að þetta var trick til að fá mig til að bjóða henni upp á eitthvað annað. Djöfull get ég verið vitlaus! Jórunn sagði að hún væri að reyna við mig, en ég vissi alveg að svo væri ekki. Svo þegar Sólon lokaði sá ég þessa stelpu vera að kyssa einhvern annan gaur, þannig ég hafði alveg rétt fyrir mér.

Ég bauð m.a. Mikka upp á skot og bjór. En svo missti hann glasið sitt þannig ég bað um annað glas, en ég þurfti að borga fyrir það - sem ég líka gerði.

Eftir að Sólon lokaði var ég orðinn frekar fullur, enda búinn að vera grand á því kaupandi drykki hægri vinstri allt kvöldið. Ég hitti Ellý góðvinkonu mína af MinnSirkus og var hún ógeðslega hress, eins og alltaf. Æðislegt alveg að hitta hana.

En svo fór ég bara með Karlottu, Tinnu og einhverri vinkonu þeirra heim. Við fórum samt ekki heim án þess að stoppa á Subway og fá okkur að borða. Svo fórum við bara heim.

Á sunnudaginn vaknaði ég klukkan 6 um kvöld. Sem betur var ég ekkert þunnur, þar sem ég þurfti að fara upp í hús að vinna. Ég var þar í einhverja 3 tíma en fór svo bara í bæinn með Karlottu og Grétari, þar sem það var jú þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní!

Það var allt brjálað í bænum af unglingum. Mér leið eins og ég væri kominn aftur í grunnskóla. En við hlustuðum bara á Pál Óskar, röltum smávegis og fórum svo bara heim. Þetta var ágætt kvöld, og vil ég bara þakka Grétari og Karlottu kærlega fyrir það.

En núna ætla ég að fara að sofa, þar sem ég þarf að mæta í vinnuna eldsnemma í fyrramálið - eða bara núna á eftir!

En ég var að enda við að taka saman áðan hvað ég eyddi miklum pening núna á laugardaginn og voru það 17.354 kr. takk fyrir! Það er alveg nokkuð ljóst að ég taki ekki kortið með mér niður í bæ næst. En ég ætla á næstu dögum að reyna að átta mig aðeins á því hvernig ég fór að því að eyða svona miklum pening niðri í bæ á 4 klukkutímum.

En segjum þetta bara ágætt í bili!




Athugasemdir ():