Deila á Facebook
« 17. júní helgin - ekkert sparað! | Aðalsíða | Lyftarapróf »

MySpace - gott að hafa áhrif
Skrifað mánud. 18. júní 2007 - 21:24
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, þið sem eruð húkkt á MySpace ættuð að hafa tekið eftir því að ekki var hægt að setja inn athugasemd á sinn eigin prófíl né sínar eigin myndir, en þökk sé mér, er það hægt núna. Ég benti Tom á þetta fyrir svolitlu síðan en hann svaraði mér aftur um hæl og sagði að hugmyndin mín væri asnaleg, en hann hefur nú íhugað þetta eitthvað betur, þar sem það vill svo skemmtilega til að núna get ég sett inn athugasemd bæði á minn eigin prófíl og mínar eigin myndir. Þið sem voruð að spá af hverju þetta er kostur þá er það til að geta svarað fólkinu sem leggur inn athugasemdir.




Athugasemdir ():