Deila á Facebook
« Lyftarapróf | Aðalsíða | Kjánaleg afgreiðsla »

Erfiður dagur
Skrifað þriðjud. 19. júní 2007 - 23:54
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég fór á þetta lyftaranámskeið í morgun. Mætti eldsnemma uppi í vinnu til að stimpla mig inn, en fór svo bara upp í mjódd með Arnari, sem er að vinna í Húsasmiðjunni líka.

Þetta námskeið var ágætt, fyrir utan það að það var ógeðslega erfitt að halda sér vakandi, þó ég hafi dottað 1-2x í nokkrar mínútur.

Á námskeiðinu hitti ég svo Kristínu, sem ég kynntist í Reykjanesinu fyrir 2 árum. Það var ægilega gaman að hitta hana og fórum við á McDonalds saman, þar sem okkur langaði í eitthvað subbulegt. Á McDonalds heilsaði ég aðeins upp á Ásgerði vinkonu mína, sem var svo upptekin við að vinna að hún mátti ekkert vera að því að segja hæ.

En svo eftir námskeiðið fórum við Arnar bara upp í vinnu aftur og kláruðum daginn til klukkan 6.

Eftir vinnu fór ég svo bara í ræktina. Það eina sem ég hafði borðað yfir daginn var McDonalds um hádegið, þannig ég mætti ógeðslega svangur í ræktina. Það vildi svo leiðinlega til að blóðsykurinn minn féll og það leið næstum því yfir mig, þannig ég fór bara heim og lagði mig aðeins. Ég man bara að borða næst!

En núna í kvöld skrapp ég á rúntinn með Grétari, þar sem við blöstuðum „I Need Me a Bitch“ í tilefni af einhverjum konudegi í dag. Hehehe, allir horfðu á okkur eins og við værum fávitar - sem við líka vorum. En þetta var gaman.

Núna ætla ég bara að fara að sofa, þar sem ég þarf að mæta aftur á lyftaranámskeiðið í fyrramálið. C'est la vie!




Athugasemdir ():