Deila á Facebook
« Kjánaleg afgreiðsla | Aðalsíða | Keðjubréf 2 »

Keðjubréf
Skrifað föstud. 22. júní 2007 - 01:20
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Djöfull fara svona keðjubréf í taugarnar á mér. Ég fæ örsjaldan svona í tölvupósti en á MySpace fæ ég þetta daglega.

Þetta þarf alltaf að vera með svo forvitnilegan titil, þannig ef maður les hann verður maður að vita meira, og opnar þ.a.l. bréfið. Þegar maður er búinn að opna bréfið stendur alltaf að nú þegar maður hafi opnað bréfið verði maður að senda þetta á X marga aðila annars muni eitthvað slæmt gerast innan nokkurra daga.

Það er greinilega ekki nóg að segja að ef maður sendi bréfið eigi eitthvað gott eftir að gerast fyrir mann. Það þarf auðvitað að segja að það gerist eitthvað slæmt fyrir mann ef maður sendi þetta ekki áfram - bara til að tryggja það enn frekar að maður sendi helvítis bréfið áfram!

Hér eru dæmi um svona keðjubréf...

„You have now opened the drinking fountain. post this bulletin or you will have bad luck for 365 days.“

„ITS PRETTY FUNNY THAT YOU OPENED this because in the next seven days you will: have someone fall in love with you, find money you've been missing, your luck will change for the better in all areas... love, happiness, job, money. BEWARE IF U DONT REPOST THIS U WILLL HAVE BAD LUCK FOR 2yrs“

Það sorglega við þetta er að fólk trúir í raun og veru að það er gerist eitthvað slæmt fyrir það ef það sendir þetta ekki áfram. Hver ætlar svo að refsa viðkomandi fyrir að senda ekki keðjubréfið áfram? Þetta er svo vitlaust að það nær ekki nokkurri átt. Ég sendi þetta aldrei áfram og mun aldrei gera!

Ég gæti sem sagt búið til keðjubréf sem myndi segja lesanda að millifæra alla peningana sína yfir á reikninginn minn annars myndu þau eiga hræðilega ævi það sem eftir væri. Það væru eflaust einhverjir trúgjarnir fábjánar sem myndu gera það og þá yrði ég milljónamæringur!

En talandi um trúgjarna fábjána, þá eru sumir sem trúa þessu keðjurugli um að MSN eigi eftir að kosta, og að ef þau sendi bréfið á 10+ vini sína, verði græni MSN kallinn blár, og þau fái þá frían aðgang að MSN. Ég hef aldrei á ævinni vitað jafn mikla vitleysu og þessa, þar sem þeir sem hafa eitthvað vit í kollinum ættu að geta séð út að það er ekki nokkur leið fyrir Microsoft/MSN að sjá að maður hafi sent bréfið áfram til 10 aðila. En það eru trúgjarnir fábjánar sem trúa þessu - og senda helvítis bréfið áfram!

Ég er í alvöru farinn að trúa því að þessi aðferð mín með að fá fólk til að millifæra alla sína peninga yfir á mig, eigi eftir að virka. Fólk er allavega að trúa svona vitleysu, þó hún sé nokkuð augljós.

Eins og t.d. með einhvern „tilbúinn“ vírus, þá hefur fólk verið að dreifa alls kyns vitleysu um þá í gegnum svona keðjubréf. Til dæmis eitt keðjubréf, sem er algjört kjaftæði frá árinu 2002, er komið aftur í umferð eftir 5 ára pásu!

Einnig þetta með að ef maður setji inn eða taki við einhverjum ákveðnum aðila á MSN hjá sér, smitist maður af vírus. Ég sé ekki alveg hvernig það mun virka, nema aðilinn sendi þér eitthvað og viðkomandi taki á móti því. Fyrir utan það er þetta bara netfang (MSN addressa) sem geymd er í gagnagrunni hjá Microsoft, og getur enginn hlotið skaða af.

En þó það sé mikið af blöffi á netinu, þá er líka mikið af alvöru hættum sem manni ber að varast. Til dæmis á maður aldrei að heimsækja slóð, sem maður er ekki 100% viss um innihaldið. Þið sjáið nú eins og þessa vírusa sem ganga manna á milli í dag (á MSN, ofl.) eru einhverjar dulbúnar JPG myndir, o.s.frv.

Þannig næst þegar þið fáið einhverja slóð senda eða enn eitt keðjubréfið um eitthvað rugl, skulið þið bara fletta því upp á Google. Það er lang sniðugast!

Farið svo varlega en ekki vera vitlaus og gleypa við þessum heimsku keðjubréfum, þar sem þetta er einungis gert í einum tilgangi - og það er til að skapa keðjuverkun á vitleysuna.




Athugasemdir ():