Deila á Facebook
« Keðjubréf 2 | Aðalsíða | Laugardagur - aftur einn! »

Föstudagur - einn í bænum
Skrifað laugard. 23. júní 2007 - 23:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Eftir lyftaraprófið í gær fékk ég stuttu seinna að vita það að ég hefði náð, þannig ég fór bara niður í Húsasmiðju og tók nokkrar pantanir saman á lyftara. Það var geðveikt gaman.

Eftir vinnu skellti ég mér bara í ræktina. Bíllinn hjá einkaþjálfaranum okkar, Kojak, bilaði þannig hann kom ekki, þannig við skelltum okkur bara sjálfir. Við vissum ekkert í okkar haus hvað við áttum að taka, hversu þungt, hversu oft, o.s.frv. þannig við fórum bara í öll tæki sem tóku tvíhöfðann og tókum 2x12 sett.

Eftir ræktina skellti ég mér bara heim, fékk mér að borða og gerði mig kláran fyrir kvöldið.

Ég komst að því strax og ég kom heim að litla tölvan (routerinn), þar sem ég geymi gaui.is, topp5.is, ofl., væri biluð. Power supplyið er víst farið í henni, þannig ég fór með pabba upp í Kælitækni til að athuga hvort hann ætti power supply til að lána mér, en hann átti það ekki. Þannig núna er ég bara á netinu í gegnum borðtölvuna. Ég veit ekki hvert ég myndi fara ef harði diskurinn væri ónýtur í routernum, því þar geymi ég allt sem ég hef gert í svona vefmálum.

En það var nú ekki mikið að gerast hjá strákunum, fyrir utan bíó og eitthvað, þannig ég ákvað bara að skella mér einn í bæinn. Seinna um kvöldið kom Grétar til mín og sótti mig, þar sem hann ætlaði að skutla mér niður í bæ um leið og hann fór að sækja mömmu sína.

Ég fór út hjá Hlöllavagninum niðri í bæ. Fékk mér að borða, þar sem ég var að deyja úr hungri þegar ég kom niður í bæ. Ég vil bara þakka Grétari kærlega fyrir skutlið niður í bæ.

Eftir að ég var búinn að fá mér að borða skellti ég mér í 10-11 og keypti mér sígarettur (já, ég reyki á djamminu). Svo rölti ég bara upp að Sólon, þar sem það var ekkert að gera. Kannski var ég bara svona snemma niðri í bæ?

Þar fyrir utan hitti ég Karlottu og Helgu. Svo kláraði ég bara að drekka kókið sem ég var að drekka og skellti mér svo inn á Sólon og fékk mér meiri bjór.

Þetta var nú meira rugl kvöldið. Ég var einn mest allt kvöldið, þar sem strákarnir voru ekki að djamma. Ég mun aldrei fara einn niður í bæ, þar sem þetta var allt annað en skemmtilegt. Ég hitti samt hresst fólk niðri í bæ, þ.á.m. Svenna, Sunnevu, Karlottu, Helgu, Aron Ólafs, Laylu, Ívar, Skúla, ofl., þannig það bjargaði eiginlega kvöldinu.

Allt kvöldið sat ég annað hvort niðri, var á barnum uppi, eða dansandi einn. Ég hitti svo Rikka G og spjallaði aðeins við hann.

Í lok kvöldsins hitti ég Gerði vinkonu Halla, og ákváðum við að deila taxa heim. Svo þegar við vorum að rölta niður laugarveginn, ásamt tveim vinkonum hennar, stoppaði hún einhvern gaur á Hondu Accord og bað hann um að skutla okkur heim. Hann var meira en til í það, og þá var þetta víst eigandi Q-bar, geðveikt fínn gaur.

Ég spjallaði við hann aðeins um bílinn sinn, þar sem hann var greinilega búinn að opna pústið (hávaði), og spurði hann hvort þetta væri Type-S og hvort hann væri 190 hestöfl. Þá sagði hann að þetta væri Comfort og væri 250 hestöfl. Þá spurði ég hann hvað væri búið að breyta í bílnum, og þá sagði hann að það væri búið að skipta um stimpla, pústkerfi, ofl. en ég vissi nú að þessi bíll væri ekki beint 250 hestöfl. Subaru Impreza WRX er í kringum 230 hestöfl og sást vel á hröðuninni og snerpunni að hann myndi ekki taka svoleiðis.

En burt séð frá því var þetta fínn gaur og vil ég bara þakka honum kærlega fyrir góðvildina að skutla okkur frítt heim, þó hann hafi ekki þekkt okkur neitt.

En ég var nú bara að vakna núna rétt áðan. Ég er ógeðslega þunnur og líður eiginlega bara hálf illa. Áður en ég fór að sofa í gær fékk ég mér 5 vatnsglös og kemur mér það bara mjög á óvart að ég skuli vera þunnur eftir það mikið vatnsmagn. En allt er nú hægt.

Það er ekkert að gerast hjá strákunum í kvöld, nema eitthvað partý hjá Guðmanni, sem ég er ekki einu sinni viss um að mér sé boðið í. En það er spurning um hvað maður geri í kvöld, þar sem það lítur út fyrir að það sé bara ekkert að gerast í kvöld. Ætli maður endi ekki bara niðri í bæ aftur - einn...




Athugasemdir ():