Deila á Facebook
« Föstudagur - einn í bænum | Aðalsíða | Tómatsósudeilan »

Laugardagur - aftur einn!
Skrifað mánud. 25. júní 2007 - 01:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Eins og Gummi segir þá er ég orðinn einhverfur, þar sem ég fer alltaf bara einn niður í bæ. En allavega, þá skellti ég mér í smá partý heima hjá Guðmanni og svo bara niður í bæ. Grétar var svo góður að sækja mig heim og skutla mér í partýið og niður í bæ, þar sem hann var edrú. Takk kærlega fyrir það, Grétar minn.

En partýið var bara helvíti skemmtilegt. Ég hitti stráka sem ég hef ekki hitt í langan tíma, þ.á.m. Gísla sem var með mér í bekk í grunnskóla, og Andra Pál, Óla Dan og Gumma, sem voru allir í einum bekk fyrir ofan okkur. Svo voru Guðmann, Halli, Jökull og Grétar þarna.

Gísli var helvíti góður á gítarnum og í söngnum, þar sem hann er byrjaður að semja lög og texta sjálfur, en hann sérhæfir sig í blues tónlist. Hann er með spes en mjög flotta bluesrödd. Þarna er upprennandi snillingur á ferð. Ég var allavega að fíla lögin hans í botn!

Seinna um kvöldið ákvað ég að skella mér í bæinn. Ég bað Grétar um að skutla mér og var hann til í það. Takk aftur, Grétar minn.

Ég kom við á Hlöllavagninum og fékk mér að borða fyrir djammið. Svo fór ég í 10-11 og keypti mér sígarettur fyrir kvöldið. Svo var bara drifið sig á Sólon.

Það var brjáluð röð fyrir utan Sólon, en ég fékk fljótt að komast inn, þökk sé Ívari. Þegar ég kom inn hitti ég Gaua bro, Karlottu, Kristínu, Svenna, Sunnevu, Jóa, Júlla, Mumma, Gerði, og fleira gott fólk.

Ég og Svenni góðir á því á Sólon. Lotta Póse tók þessa mynd!


En ég skemmti mér bara ágætlega um kvöldið, þó ég hafi aftur, eins og auli, farið einn niður í bæ. Hvað er annars málið með það? Ætli það sé ekki bara það að ég er djammfíkill og bæjarrotta og verð að fara niður í bæ, þó strákarnir ætli ekki. Kannski er kominn tími á að dempa þetta aðeins niður? Það er ekki eins og bærinn fari eitthvað, nema að hann brenni allur eins og Pravda.

Um það leyti sem Sólon lokaði hitti ég Gumma. Ég bað hann um að taka leigubíl með mér og að sjálfsögðu var hann til í það. Svo hittum við Elfu, sem er að vinna á Sólon, og ætlaði hún að koma með okkur, en við stungum hana óvart af. Hún kom samt til okkar þegar við vorum á Hlöllavagninum.

Á meðan við vorum hjá Hlöllavagninum var margt skrítið fólk sem gekk fram hjá okkur, en við höfðum endalaust gaman af því að heilsa því, setja út á það og bjóða því góða nótt. Einnig líka gaman að hitta Kína, en hann vildi því miður ekki kannast við okkur.

Á meðan ég fór að pissa tók Elfa sig til og hellti kóki yfir einhvern dauðan gaur, en ég missti því miður af því. Svo tókum við bara þrjú leigubíl saman. Fyrst var komið við í Vesturbænum fyrir Elfu, þar sem hún fór út, svo var Gummi næstur og að lokum ég. Elfa borgaði ekki krónu í taxanum, en þar sem hún er kvenkyns, þurfti hún ekki að borga. Hvað eru konur svo að væla yfir kynjamisrétti?!

Þegar ég kom svo heim fékk ég mér 5 vatnsglös og tannburstaði tunguna á mér, þar sem mamma segir að það virki mjög vel við þynnku, og viti menn - það virkaði! Ég vaknaði nákvæmlega ekkert þunnur!

Ég var m.a.s. það hress þegar ég vaknaði að ég dreif mig upp í hús að vinna. En núna ætla ég bara að segja þetta gott, þar sem ég þarf að vakna eldsnemma í vinnuna á morgun. Segjum þetta bara ágætt þangað til næst!




Athugasemdir ():