Deila á Facebook
« Skemmtilegt kvöld | Aðalsíða | Íslensku vefverðlaunin 2005 - bull og vitleysa? »

Skemmtilegasta helgin!
Skrifað sunnud. 27. nóvember 2005 - 22:23
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Eitt af skemmtilegri helgum í langan tíma.

Ég vaknaði seint. Guðrún og Tara komu og fengu DVD mynd lánaða hjá mér. Ég bjallaði svo í Kollu og spurði hana hvað hún ætlaði að gera í kvöld. Hún ætlaði niður í bæ þannig ég spurði hana hvort ég ætti ekki bara að sækja hana. Hún samþykkti það og dró ég Jökul með mér í bíltúr í Hafnarfjörð að sækja hana.

Seinna hringir Kristín í mig og spyr hvar ég er. Ég segi bara að ég sé heima hjá mér og spyr hvort hún, Óli, Danni og Karen (frænka hennar) megi kíkja við. Ég býð þeim það. Stuttu seinna koma þau. Ég skrepp í sturtu og geri mig fínan fyrir kvöldið. Þau sitja bara eitthvað frammi og eru að spjalla, drekka og reykja.

Meiningin var ekki að halda neitt partý en það fór eitthvað úr skorðum. Seinna um kvöldið hringir Hulda í mig og spyr hvað ég sé að gera. Hún var niðri á Essoplaninu og bjóst við því að ég væri þar á Live2Cruize samkomu. Ég sagði henni bara að ég væri heima og bauð henni og vinkonum hennar að kíkja og ætluðu þær að gera það.

Svo koma Hulda og tvær vinkonur hennar; Liga og Anna. Við setjumst öll í sólstofuna og erum bara að slappa af og drekka.
Seinna fara Hulda og vinkonur vegna hennar þess að hún var að fara að vinna næsta dag. Ég kveð þær og held svo áfram með vinum mínum.

Seinna sofnaði Kristín í rúminu mínu og gat ekki vaknað aftur. Þá fór Karen heim og ég, Jökull, Óli, Danni og Kolla fórum niður í bæ.

Við byrjum á Glaumbar og vorum þar í svolítinn tíma. Seinna fór ég með Kollu að hitta vinkonur hennar og fórum við eitthvað annað. Ég man það ekki alveg. Svo fórum við aftur á Glaumbar en þá voru Jökull, Óli og Danni farnir. Við hringjum í þá og þá eru þeir farnir upp í Breiðholt. Seinna beila vinkonur hennar Kollu á okkur og fara með einhverjum svertingjum heim.
Ég og Kolla förum á Café Cozy og drekkum nokkra bjóra þar og spjöllum við Kjartan hressa, sem við þekkjum ekki neitt en hann var mjög hress og skemmtilegur.
Seinna hringir Óli í okkur og spyr okkur hvað við séum og spyr hvort hann eigi að koma að sækja okkur. Við þiggjum það og kemur hann og sækir okkur.

Þegar við komum heim, liggur Kristín uppi í rúmi og Jökull situr og er að spjalla við hana. Við spjöllum öll smá saman og svo fer Jökull heim og ég, Kristín og Kolla förum að sofa.

Við vöknuðum svo kl 4 í dag og ég skutlaði stelpunum heim. Svo fer ég til Jökuls og kíki á nýju Dýralíf.is búðina og svo fer ég heim, fæ mér að borða og fer svo í tölvuna.

Núna er ég bara að fara að rúnta með Jökli þannig við heyrumst.

En þessi helgi fær fimm stjörnur af fimm mögulegum! Jökull og ég erum sammála því að þetta sé ein af bestu helgum á þessu ári. Alveg merkilegt hvað það er gaman að djamma með vinum sínum.

Ciao...




Athugasemdir ():