Að astast
Skrifað miðvikud. 27. júní 2007 - 01:07Hafiði tekið eftir því þegar einhver nennir ekki að útskýra hvað hann er að gera nákvæmlega („ég er að...“), að hann segi bara nafnorðið og bæti „ast“ fyrir aftan? T.d. tölvast, msn'ast, sms'ast, o.s.frv. T.d. þegar ég er að taka fram að ég sé bara einn og hafi ekkert að gera, segi ég oft: „Ég er bara að lónerast“. Svo þegar ég er að gera eitthvað en nenni ekki að segja manneskjunni hvað ég er að gera, eða þá að henni komi það ekki við, segi ég: „Ég er bara að rónast“. Á þetta bara við um mig eða?
Athugasemdir (

