Deila á Facebook
« Kjánaleg heimsókn í MEST | Aðalsíða | Skemmtileg saga »

Smá óhapp
Skrifað laugard. 30. júní 2007 - 00:18
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég lenti í frekar leiðinlegu óhappi í dag. Ég var að taka upp búnt á lyftaranum mínum í dag þegar kúnni ætlaði að troða sér fyrir aftan mig. Ég lít við og sé kúnnann vera að bíða, þannig ég kalla til hans: „Kemstu?“, og hann hrópar til baka: „Nei!“. Ég ákveð þá að færa mig og hleypa honum. Ég byrja að bakka og þá er hann allt í einu kominn fyrir aftan mig og ég nuddast aðeins í hann.

Það varð nú ekkert stórtjón - bara smá nudd, en um leið og þetta gerðist öskrar hann eitthvað: „Hey hey!“ og ég lít við og sé hann þarna fyrir aftan mig, þannig ég stoppa fyrst og færi mig svo áfram. Svo spyr ég hann hvort ég hafi keyrt á hann og því svaraði hann játandi, þannig ég færi lyftarann og fer til hans og spyr hann hvað hann hafi verið að pæla, og þá gjörsamlega fýkur í hann og potar hann þá puttanum sínum þéttingsfast í bringuna á mér og ýtir mér með honum. Ég leyfi honum þá að lokum að heyra að hann hafi verið í algjörum órétti, en ég fór nú ekki yfir strikið, þar sem ég er starfsmaður þarna og ber að koma vel undir nafni fyrirtækisins.

En vá, hvað var hann að spá að troða sér þarna þegar hann var búinn að segja mér að hann kæmist ekki? Ég var auðvitað ekkert að líta aftur við, þar sem ég var búinn að gera það einu sinni og hann var búinn að segja mér að hann kæmist ekki, og þá ætlaði ég bara að færa mig - og ég bjóst engan veginn við því að hann myndi reyna að troða sér eftir að hann var búinn að láta mig vita að hann kæmist ekki!

Hérna er mynd af stöðu allra aðila, sem ég teiknaði á augabragði í Paint. Framljósin eru gul á myndinni þannig þið vitið hvað er fram- og afturhlutinn á ökutækjunum.


***


Ég er búinn að fá útborgað og verð ég nú bara að segja að launin voru framar öllum vonum og væntingum, og er ég hæstánægður. En það leiðinlegasta við að fá pening er það að borga reikninga og skuldir, þar sem þá sér maður peninginn hverfa svo hratt.

***

Svona í lokin langaði mig bara að segja að mér tókst að hlaupa 3 km í kvöld í ræktinni. Kojak ákvað bara að draga okkur út að hlaupa, og hlupum við allan voginn þarna hjá Veggsport, fórum undir Gullinbrúna og hlupum svo að lokum yfir brúnna og aftur upp í Veggsport. Ég var nú frekar búinn eftir þetta, en þetta hafðist þó!

En núna ætla ég bara að fara að sofa fljótlega, þar sem ég þarf að mæta í vinnuna kl 9 í fyrramálið. Segjum þetta bara ágætt í bili!

Lag dagsins:
Páll Óskar - Allt fyrir ástina




Athugasemdir ():