Skemmtileg saga
Skrifað laugard. 30. júní 2007 - 20:01Ég sat í stólnum hjá mömmu, þar sem hún var að klippa mig og strípa mig, og á meðan sagði hún mér fyndna sögu frá því að ég og Grétar vorum litlir. Þessi saga er enginn illur ásetningur á Grétar - heldur bara fyndin saga.
Þegar ég og Grétar vorum sirka 5 ára ætluðum við sko aldeilis að græða á því að búa til eitthvað drasl, þannig við tókum einhverja víra og bjuggum til listaverk úr þeim. Svo reyndum við að selja listaverkin og tókst okkur m.a.s. að selja nokkur og þéna smá pening (500 kr. sirka).
Í miðri sölu ákvað ég að ná í sparibaukinn minn til að nota sem skiptimynt. Sparibaukurinn var stútfullur af peningum, þar sem ég var alltaf svo duglegur að spara.
Þegar við vorum hættir að selja ákváðum við að skipta ágóðanum en ég ákvað þá af einskærri góðvild minni að leyfa Grétari að fá helminginn af sparibauknum mínum. Ég veit ekki alveg hvað ég var að spá, en mamma sagði að ég hefði verið svo gjafmildur og góður. En áður en ég ætlaði að gefa Grétari hálfan sparibaukinn minn stoppaði mamma mig, og var sko ekki beint sátt.
En eftir allt púlið ákváðum við að skella okkur út í sjoppu og kaupa nammi fyrir ágóðann. Þegar út í sjoppu var komið hafði Grétar týnt peningnum sínum, þannig ég keypti nammi fyrir okkur báða jafnt með mínum helming af peningunum.
Á leiðinni heim komst ég einhvern veginn að því að Grétar hafði logið að mér að hann hefði týnt peningnum sínum, og falið þá allan tímann í vasanum sínum. Ég var sko ekki sáttur og fór hundfúll heim og lét mömmu vita af þessu.
Hún ráðlagði mér þá að hringja í mömmu Grétars og fá hana til að tala við Grétar um að skila mér peningunum mínum. Ég hringdi og hún sendi Grétar til mín með helminginn af sínum peningum, þannig við vorum kvittir.
Hehehe, skemmtileg saga úr æsku minni - í boði minninga mömmu.

Athugasemdir (