Laugardagur - afmæli & innflutningspartý
Skrifað mánud. 2. júlí 2007 - 04:03Á laugardaginn fór ég að vinna, kíkti svo í afmæli til vinkonu Gumma, sem var að verða 20 ára, svo í afmæli til Halla, sem var að verða 22 ára gamall. Svo kíkti ég að lokum í innflutningspartý hjá Maju frænku og svo bara niður í bæ.
Gummi kom og sótti mig til að byrja með heim til mín kl 9 leytið á laugardeginum. Við vorum á leið í afmæli hjá Ásdísi Svövu vinkonu hans. Við stoppuðum fyrst á Sólon til að leita að kortinu hans, sem hann hafði týnt kvöldið áður, en það fannst ekki. Svo lá leið okkar í afmælið til Ásdísar, en áður en við komum við hjá henni þurftum við auðvitað að kaupa blóm handa henni. Við rúntuðum út um allan bæ í leit að blómabúð sem væri opin til 10, en án árangurs. Við fórum þá bara allslausir í afmælið hennar.
Það var ágætt í afmælinu hjá henni. Það var haldið á Ölver, en Sportbarinn er þar við hliðina. Þegar við komum sáum við bara helling af gömlu fólki fyrir utan, þannig við héldum fyrst að þetta væri vitlaus staður. Svo kíktum við inn og sáum helling af fólki á Sportbarnum en svo inni á Ölver var lítið af fólki, og þar hlaut afmælið að vera. Ekki héldum við það vegna fjöldans heldur vegna meðalaldursins þar.
Við röltum bara inn í dimman salinn og hittum afmælisbarnið. Við heilsuðum henni bara og óskuðum henni innilega til hamingju með afmælið, en svo settumst við bara niður. Ásdís bauð mér bjór og þáði ég hann með þökkum, en þá rétti hún mér svona bjórmiða. Ég þurfti þá að fara yfir á Sportbarinn og sækja bjórinn þangað. Svo sátum við bara þarna stutta stund, jöpluðum á rice crispies kökum sem hún bakaði, bjór og spjölluðum saman.
Ég vil bara óska Ásdísi og vinkonu hennar innilega til hamingju með þann merka áfanga í lífinu að vera orðnar tvítugar!
Eftir afmælið hjá Ásdísi lá leið okkar til Halla. Þegar við komum þangað var margt um manninn og sá Guðmann alfarið um tónlistina þarna, enda gítarsnillingur þarna á ferð.
Ég gaf Halla Chardonnay hvítvín frá árinu 2005 sem ég keypti fyrr um daginn. Ég hafði einungis heyrt góða hluti um þetta hvítvín þannig ég ákvað að kaupa það. Hjúkket að ég komst svo að því eftir á að Halli drykki ekki hvítvín! Gummi gaf honum Tequila flösku með orminum fræga í - sem hann tók svo seinna um kvöldið. Svo ákvað Helgi að vera fyndinn og gaf honum einhvern trjádrumb úr vinnunni. Klapp klapp, Helgi!
Eftir nokkurra stunda dvöl hjá Halla ákváð ég að kíkja til Maju frænku í innflutningspartýið hennar, þar sem ég var búinn að lofa henni mörgum vikum áður að koma. Ég spurði Gumma hvort hann vildi koma með og var hann til í það, enda stemmningin alveg að niðurlotum komin heima hjá Halla. Gummi bauð svo Palla með og slóst hann í för með okkur.
Ella systir mín kom og sótti okkur heim til Halla, ásamt Gumma kærastanum sínum, og skutlaði okkur heim til Maju. Áður en við fórum til Maju ákvað ég að fá mér að borða á Subway. Þegar ég var búinn að borða hitti ég strák fyrir utan og byrjaði hann með einhverja stæla. Hann byrjaði á því að segja eitthvað: „Gaui Why-Try“ og gerði sig líklegan til að kýla mig. Svo tók hann þéttingsfast högg og fór það beint í lærið á mér - sem betur fer! Annað hvort ætlaði hann að hitta í punginn á mér eða magann, en okkur Gumma tókst svo að lokum að róa hann með því að tala rólega við hann. Það sást að hann var mjög fullur!
En þegar við komum heim til Maju var svolítið af fólki þarna, aðallega samt vinir Adams kærustu Maju og kærustur þeirra.
Rétt eftir að við komum til Maju og Adams hringdi Jökull í mig og var að leita að okkur. Þetta símtal var svo fáránlega fyndið að við vorum í krampa út af þessu. Jökull var líka svo fáránlega fullur og vissi ekkert í sinn haus!
Við byrjuðum á því að rugla í honum að við værum uppi á svölum þegar hann spurði okkur hvar við værum, en hann fann okkur aldrei. Svo þegar við loks sögðumst vera í Kópavogi bað hann okkur alltaf um að opna. Hann hélt þá að við hefðum sagt: „klósetti“. Við sögðum m.a.s. KÓPAVOGI mjög hægt en hann bað okkur samt alltaf um að opna. Þetta var of fyndið!
Gummi og Palli voru engan veginn að nenna að vera þarna þannig þeir stungu af á Players. Ég horfði á þá af svölunum hjá Maju og var Gummi ýtandi Palla í einhverri innkaupakerru, sem Palli valt svo í. Hahaha, of fyndið!
Eftir að ég hafði stigið á blauta mottu inni ákvað ég að fara út á svalir að reykja og leyfa sokknum að þorna aðeins. Þá sat einhver kærasta vinar Adams þarna og var verulega áhugaverð um bleytuna á sokknum mínum. Hún hélt því svo fram að ef ég væri blautur undir sokknum að þá hlyti bleytan að smitast í gegnum löppina og út um allan sokkinn og sokkurinn myndi enda með því að verða allur blautur. Ég skildi ekkert hvað hún var að segja og sagði henni bara óspart að hún væri ljóska.
Svo seinna um kvöldið ákváðu ég, Gummi kærasti Ellu og Adam að fara í staupkeppni. Ég og Adam byrjuðum á því að taka staup af Baccardi Limon, en svo tók Gummi þátt með okkur. Ég kom með einhvern leik þar sem við myndum taka staupið og sá sem myndi koma með einhver svipbrigði þyrfti að taka annað staup. Það endaði með því að Gummi tapaði og þurfti að taka annað staup.
Ég vil bara óska Maju frænku og Adami innilega til hamingju með nýju íbúðina sína!
Á þessum tímapunkti var ég orðinn mjög fullur og var eiginlega ekki í ástandi til að fara niður í bæ, ég fór nú samt. Ég fór í VIP röðina á Sólon og hleypti Benni mér strax inn. Ég fór þá bara að leita að Gumma og þeim, þar sem þeir sögðust vera sitjandi þarna einhverstaðar. Ég fann þá svo loksins.
Um kvöldið var svo hent Andra og Helga út. Það byrjaði með því að einhver gaur rakst í/ýtti Andra, þannig hann brjálaðist og sagði Helga frá því. Helgi fór þá til gaursins alveg brjálaður. Það endaði þá með því að einhver dyravörður fór að skipta sér af deilum þeirra og reif Helgi þá kjaft við hann og hótaði honum, sem leiddi til þess að þeim var hent út. Ég fylgdist með þessu öllu saman og voru þetta engan veginn réttmætar aðgerðir hjá þessum dyravörðum. En á hinn bóginn átti Helgi ekki að rífa kjaft við dyraverðina, og allra síst að hóta þeim, en ég skil það svo sem að vissu leyti, þar sem þeir ætluðu að henda Andra út, út af engu!
Eftir þetta fór ég bara með Helga og Andra út og spjallaði aðeins við þá. Þá hitti Andri einn gaurinn sem var með gaurnum sem hafði ýtt honum, og fór að rífast í honum. Hann var þá með helling af vinum sínum þarna, þannig ég stóð þarna og sá til þess að Andri myndi ekki gera nein heimskupör, þar sem þessir gaurar eru engin lömb að leika sér við. En sem betur fer var ekkert vesen.
Að lokum kvaddi ég bara Helga og Andra og fór aftur inn á Sólon að djamma.
Um kvöldið hitti ég Smára, sem er að vinna með mér, en hann var gjörsamlega brjálaður á dansgólfinu. Hann var að reyna við einhverja stelpu og gerði það á kolrangan hátt. Hann var allt of ágengur, enda sagði hún við mig að hún hefði engan áhuga á honum þar sem hann káfaði allt of mikið á henni!
Smári var samt ekki sáttur og trúði mér ekki og endaði það með því að hann beið eftir henni fyrir utan Sólon eftir lokun til þess að fá að vita hjá henni hvað hann hefði gert rangt. Hehehe, meira ruglið.
Eftir að það lokaði á Sólon röltum við bara niður laugarveginn. Svo stakk hann af og ég var einn þarna, en ég hitti svo Kollu, Tobbu, Svenna, Daða og Sunnevu. Þau voru öll hress og spjallaði ég dágóða stund við þau.
Seinna hitti ég Ella, sem er að vinna með mér, en hann var með vinum sínum. Ég bað hann um að hitta mig og gerði hann það. Hann sagðist þá ætla að splæsa á mig eitthvað að borða og endaði það með því að við fórum á Pizza King og fengum okkur nokkrar sneiðar og kók. Á meðan dönsuðum við, við tónlistina þar. Geðveikt stuð!
Við röltum bara í leigubílaröðina en á leiðinni lenti Elli í einhverjum útistöðum við einhvern gaur, sem hélt að Elli hefði verið að kalla vin sinn homma. Þetta var allt einn allsherjar misskilningur, en það endaði næstum því með slagsmálum. Ég spurði gaurana hvað þeir væru eiginlega gamlir og sagðist einn gaurinn vera 18 ára. Hann hagaði sér líka eins og hann væri á þeim aldri, jafnvel yngri. Djöfulsins asnar í leit að veseni eftir djammið - einmitt þegar manni langar bara að fara að sofa!
Ég tók svo bara einn taxa heim og borgaði 2500 kr. fyrir það, sem er bara ágætlega vel sloppið.
En núna er klukkan orðin fáránlega margt og ég þarf að mæta í vinnuna eftir örfáa tíma, þannig ég ætla að hoppa upp í rúm!

Athugasemdir (