Helgin í heild sinni
Skrifað mánud. 9. júlí 2007 - 04:33Ég djammaði ekkert á föstudaginn, þar sem ég var að fara að vinna snemma á laugardaginn. Ég fór samt í bíó með vinnufélögum mínum; Smára, Pétri og Villa á myndina Evan Almighty.
Myndin fjallar um þingmanninn Evan Baxter sem leikinn er af Steve Carell, heppna fréttaþulinn í Bruce Almighty, þegar Jim Carrey lék Bruce. Í þetta sinn hefur guð, sem leikinn er af Morgan Freeman, samband við Evan og felur honum það verkefni að búa til risastóra örk, sem á að bjarga öllum frá svaka flóði.

Myndin er í heild sinni ágæt, en mér fannst hún nú þó nokkuð lakari eftir hlé. Ég verð nú bara að segja að Wanda Sykes, sem lék ritara Evans, átti helminginn af myndinni, þar sem hún fór gjörsamlega á kostum með brandarana og kaldhæðninni sinni. Snilldar grínisti þar á ferð!
3/5
Á laugardaginn byrjaði ég á því að mæta í vinnuna um morguninn. Ég vaknaði að vísu svolítið seint en þegar ég vaknaði var Gasolina lagið í botni, en ég hafði stillt tölvuna þannig að hún myndi byrja að spila það á hæsta styrk kl hálf 9. Það fyndna er að ég vaknaði kl hálf 10. Ég hafði sem sagt ekki rumskað í klukkutíma á meðan lagið var í botni.
Það var voða lítið að gera í vinnunni, þó það hafi aukist verulega eftir því sem meira leið á daginn. Svo þegar klukkuna vantaði eina mínútu í lokun kom einhver kúnni og keypti 7 skjólveggi. Alveg típískt að ég var búinn 20 mínutum seinna út af þessu. En ég lét þetta ekki á mig fá, þar sem kvöldið átti að vera gott.
Eftir vinnu fór ég með Pétri og Ella í ríkið í Skeifunni og keypti áfengi fyrir þá. Ég borgaði sirka 12.000 kr. fyrir þá en þeir lofuðu að borga mér aftur. Ég verð greinilega að taka aðeins í Ella í vinnunni á morgun þar sem hann er ekki búinn að leggja inn á mig, en Pétur er sem betur fer búinn að því.
Eftir á fór ég á Nings og fékk mér að borða. Ég tók matinn bara með mér heim og horfði á sjónvarpið. Eftir matinn sofnaði ég en ég var búinn að stilla vekjaraklukkuna áður ef til kæmi að ég myndi óvart sofna. Á meðan ég var sofandi komu Gummi, Steini og Jökull, og reyndu að vekja mig, en ég vaknaði ekki. Svo fóru þeir bara. Ég vaknaði aðeins seinna og sá helling af missed calls á símanum mínum þannig ég hringdi í þá.
Þeir komu þá aftur seinna um kvöldið. Snævar vinur hans Steina var með þeim og höfðum við það bara ágætt heima, spjallandi, drekkandi bjór og hlustandi á tónlist.
Seinna um kvöldið komu Smári og Viddi. Smári er að vinna með mér í Húsasmiðjunni og hafði ég boðið honum heim til mín fyrr um daginn. Viddi er Júdókappi sem er vinur Halla, Helga og þeirra. Svo vill svo skemmtilega til að Smári þekkir Vidda, þannig hann bauð honum bara með sér.
Svo seinna um kvöldið kíkti Grétar á okkur og svo ennþá seinna Gummi og Siggi, vinir hans Steina. Við fengum svo far hjá Sigga niður í bæ, en hann var á glænýjum rauðum Golf GTi, sem var á gunmetal felgum. Ég gerðist það sniðugur að strjúka felgunum hans og varð við það svartur á puttunum.
En þegar við komum niður í bæ sagðist Steini vera svo svangur þannig við fórum á Hlöllavagninn og hann fékk sér að borða. Svo röltum við bara á Sólon og komumst strax inn í VIP.
Kvöldið var bara ágætt í heild sinni, en toppur kvöldsins var án efa heima hjá mér og á heimleiðinni þegar ég hitti Eygló og Atla. Ég hef náttúrulega ekki hitt Eygló í langan tíma og var æðislega gaman að hitta hana aftur. Við plönuðum að fara á djammið næstu helgi og ætlum við svo sannarlega að gera það!
Við röltum niður Laugarveginn og á Pizza King, þar sem ég fékk mér að borða. Svo hittum við einhvern gæðing sem var með mömmu sinni á djamminu. Hahaha, svo rákumst við á töframann, sem tók hálfkláraða sígarettu hjá mér og lét hana hverfa. Svo lét hann eina krónur festast saman og teygjur fara í gegnum hvor aðra. Alveg merkilega skemmtilegt að sjá þetta, og ég var ekki að fatta neitt.
En á leiðinni heim dó ég næstum því. Ég var orðinn svo fullur að ég gat varla haldið höfðinu mínu uppi, en mér tókst einhvern veginn að koma mér inn og upp í rúm. Ég var ógeðslega fullur eftir að Sólon lokaði en svo var mér gefinn einhvern Cult Shaker sem drap mig á endanum. Ég vil bara þakka manneskjunni í bílnum á Laugarveginum sem gaf mér þennan Cult Shaker, eða ekki...
En ég var vakinn í dag með því að það var kastað einhverju drasli í mig. Ég var náttúrulega einn heima og systir mín var lyklalaus og vantaði svo að komast inn að hún henti einhverju drasli í mig í gegnum gluggann minn sem var opinn. Ég var búinn að sofa í nokkra tíma og var ógeðslega þunnur, þannig ég lokaði bara glugganum og fór aftur að sofa.
Svo vaknaði ég klukkan 11 í kvöld ógeðslega þunnur! Ég fékk mér bara ibufen og lagaðist strax við það. En núna er klukkan orðin svo ógeðslega margt að ég er að spá í að fara bara að sofa. Vinna eftir örfáa tíma.
En svona í lokin, þar sem ég tók engar myndir af djamminu um helgina, ætla ég að sýna ykkur afraksturinn eftir sirka þrjá mánuði í ræktinni...

Hvernig væri þetta nú í dag ef ég hefði borðað prótein og kreatín eins og ég átti að gera? Maður spyr sig.
Myndin fjallar um þingmanninn Evan Baxter sem leikinn er af Steve Carell, heppna fréttaþulinn í Bruce Almighty, þegar Jim Carrey lék Bruce. Í þetta sinn hefur guð, sem leikinn er af Morgan Freeman, samband við Evan og felur honum það verkefni að búa til risastóra örk, sem á að bjarga öllum frá svaka flóði.
Myndin er í heild sinni ágæt, en mér fannst hún nú þó nokkuð lakari eftir hlé. Ég verð nú bara að segja að Wanda Sykes, sem lék ritara Evans, átti helminginn af myndinni, þar sem hún fór gjörsamlega á kostum með brandarana og kaldhæðninni sinni. Snilldar grínisti þar á ferð!
3/5Á laugardaginn byrjaði ég á því að mæta í vinnuna um morguninn. Ég vaknaði að vísu svolítið seint en þegar ég vaknaði var Gasolina lagið í botni, en ég hafði stillt tölvuna þannig að hún myndi byrja að spila það á hæsta styrk kl hálf 9. Það fyndna er að ég vaknaði kl hálf 10. Ég hafði sem sagt ekki rumskað í klukkutíma á meðan lagið var í botni.

Athugasemdir (