Deila á Facebook
« Helgin í heild sinni | Aðalsíða | Útlit - smá pæling »

Smá pirringur
Skrifað fimmtud. 12. júlí 2007 - 01:09
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Djöfull líður tíminn hægt og allt verður ógeðslega leiðinlegt þegar maður er pirraður eða í vondu skapi. Héðan í frá er markmið mitt að reyna að láta ekkert á mig fá í vinnunni, þar sem það breytir öllu hvernig skapi maður er í!

Pirringurinn og vonda skapið kom út af því að fyrr um daginn var ég með pöntun sem ég komst aldrei í að gera. Ég fékk pantanir um morguninn og var takmark mitt að ná að klára þær allar fyrir klukkan 6, sem tókst að lokum. Ástæðan var aðallega út af því að um leið og ég komst inn í pantanirnar var ég dreginn strax aftur úr þeim með því að þurfa að afgreiða kúnna.

Klukkan 5 var ég á síðustu pöntuninni og þurfti ég að klára hana fyrir klukkan 6, þannig ég setti mig bara allan í hana og lét strákana um að afgreiða, þar sem bílstjórinn ætlaði að koma klukkan 6 að sækja pöntunina, þannig hún varð að vera tilbúin fyrir þann tíma!

Um leið og ég setti mig inn í pöntunina komu kúnnar til mín í leit að afgreiðslu en ég hafði bara því miður ekki tíma til að afgreiða þá, þar sem ég var á fullu að reyna að klára þessa helvítis pöntun. Ekki bætti úr skák að allir afgreiðslumennirnir voru ekki einu sinni á svæðinu. Það varð til þess að ég varð ennþá pirraðri.

Það er sko ekkert grín að taka saman 50 stk. af 21x120, 120 stk. af 21x45 og 20 stk. af 48x98, á einum klukkutíma - og að þurfa að handtína allt!

En þetta tókst að lokum og ég gat klárað pöntunina fyrir lokun þannig vörubílstjórinn gat tekið efnið með sér.

Á meðan ég var í þessu brjálæðiskasti að tína spíturnar á fullu dró ég út spítu sem fór beint í andlitið á mér, þannig gleraugun mín duttu í jörðina af annari hæð. Það varð til þess að þau skekktust og þarf ég að láta laga það við fyrsta tækifæri.

***

Í dag tók ég svo verklega lyftaraprófið. Það kom prófdómari frá Vinnueftirlitinu sem fylgdist með og úrskurðaði hvort við værum hæfir eða vanhæfir.

Við áttum að taka búnt, sem staðsett var ofan á nokkrum öðrum búntum, taka það niður, keyra með það í hring og setja það svo aftur á sinn stað.

Ég stóð mig með stakri prýði, án nokkurra villna eða vandræða, og hældi Guðjón yfirmaður mér bak og fyrir, fyrir vel unnið verk - og sagði m.a.s. að ef það þyrfti að gera eitthvað erfitt á lyftara ætti ég að sjá um það. Ekki amalegt það!

Svo núna í kvöld fór ég bara upp í hús að vinna. Klukkan er samt orðin fáránlega mikið þannig ég segi þetta bara ágætt í bili!




Athugasemdir ():