Föstudagur - bara edrú
Skrifað laugard. 14. júlí 2007 - 20:15Í gærkvöldi kíkti ég að sjálfsögðu niður í bæ. En ekki hvað? Ég byrjaði náttúrulega bara að sötra heima, en ég þorði nú ekki að drekka meira en einn bjór ef til kæmi að ég gæti ekki reddað mér niður í bæ.
Eftir að ég var búinn að vera allnokkra stund að reyna að redda mér niður í bæ nennti ég þessu ekki og ákvað bara að vera á bíl. Bara svo þið vitið það þá tók ég engar áhættur og blés í svona áfengismælir sem pabbi á, þannig ég mátti alveg löglega keyra.
Ég skellti mér bara á rúntinn niður í bæ. Ég byrjaði á Laugarveginum. Þegar ég var að beygja inn á Laugarveginn voru einhverjar tvær stelpur í Hondu Civic sem veifuðu mér á fullu. Ég vissi ekkert hverjar þetta væru en veifaði nú samt til baka, í eintómu kurteisisskyni. Svo keyrði ég bara á eftir þeim niður Laugarveginn.
Það hringdi einhver stelpa í mig endalaust á meðan ég var að keyra niður Laugarveginn, en hún hringdi alltaf með leyninúmeri þannig ég gat ekki séð hver þetta væri. Hún sagðist vera að horfa á mig vera að keyra niður Laugarveginn, þannig það var alveg smá pirrandi að vita ekki hver þetta væri. Ég þekkti heldur ekki röddina þannig ég hef ekki hugmynd um hver þetta var. Hún var bara eitthvað að rugla í mér og þegar ég varð forvitinn skellti hún alltaf á.
Þegar ég var kominn ágætlega langt niður Laugarveginn kom Maja frænka og heilsaði upp á mig. Hún vildi endilega að ég kæmi með henni að djamma, þannig ég lagði bílnum og fór með henni.
Við byrjuðum á Hlöllavagninum, þar sem Adam kærastinn hennar var og vinir hans. Við fórum svo á Café Paris og fengu þau sér Mohjito og ég bara pepsi. Svo reyndum við að fara inn á Hressó, en Maja var ekki með skilríkin sín, þannig við enduðum bara á Sólon.
Þegar ég kom á Sólon hitti ég Önnu Björt, sem er víst flutt í bæinn og á leið í Háskóla Íslands í sálfræði. Gott hjá henni! Svo hitti ég strákana; Grétar, Gumma, Gaua bro, Halla og Jóa.
Þetta kvöld endaði bara með því að ég var allt kvöldið bara á Sólon með strákunum. En í lok kvöldsins vorum við Gummi bara eftir, þannig eftir kvöldið skutlaði ég honum bara heim og ég fór sjálfur heim að sofa.
Það var nú bara nokkuð hressandi að djamma svona edrú, og þægilegt líka að geta keyrt heim og sleppt því að vera þunnur morguninn eftir.

Athugasemdir (