Laugardagurinn
Skrifað mánud. 16. júlí 2007 - 03:36Ég skellti mér aðeins út á lífið í gær. Grétar kom og sótti mig heim til mín. Við fórum til Halla, þar sem hann var með eitthvað smá fyrirpartý. Þeir sem voru hjá honum voru Halli, ég, Grétar, Jökull, Palli, Gaui bro og Viddi.
Þegar klukkan var eitthvað í kringum 2 ætluðum við að skella okkur bara niður í bæ, en þurftum að koma við heima hjá Gumma til að sækja kortið hans Gaua bro. Gummi var þá þar með stelpunum sem vinna með honum, og stoppuðum við þar í smá stund og spjölluðum við þau. Gummi var ekki á leiðinni í bæinn þar sem hann þurfti að vakna snemma næsta dag, þar sem hann var að fara að leika í auglýsingu. Frægi gaur!
Við strákarnir fórum þá bara niður í bæ og enduðum að sjálfsögðu á Sólon. Það var brjáluð röð þar og var VIP röðin stútfull. Það fyndna er að maður getur komist inn í VIP röðinni þótt maður þekki engan í dyrunum.
En eftir mjög langa bið komumst við loks inn. Ég hitti helling af fólki inni, þ.á.m. Önnu Björt, Kristínu, Svenna, Andra, Rikka G, Ægi, Ívar, Íbba, Matta, Laylu, Jóa, Ella, ofl.
Seinna um kvöldið skruppum við Jökull í 10-11 á Laugarveginum og keyptum sígarettur. Á leiðinni til baka á Sólon hittum við Júlla, sem var að sjálfsögðu hress. Hann var klæddur í stuttbuxur og bol, þannig við bjuggumst nú ekki við að honum yrði hleypt inn á Sólon út af dresscode'inu þar, en allt kom fyrir ekki og var honum hleypt inn. Ég fór í hettupeysu á Sólon á föstudeginum en þurfti að fara úr henni.
Eftir að Sólon lokaði endaði ég bara með Júlla og Ella sem er að vinna með mér í Húsasmiðjunni, og fleira fólki. Við röltum bara og fengum okkur að borða og sátum bara heillengi spjallandi saman. Það var ágætt. Að lokum tók ég bara leigubíl heim.
En ég er ekki sáttur við það að við Eygló vorum búin að plana að djamma saman þarna um kvöldið, þar sem þetta var síðasa kvöldið til að djamma saman áður en hún flytti út til útlanda, en svo beilar hún bara á mér og svarar ekki símanum eða neitt. Ekki beint kúl!
En núna ætla bara að fara að sofa, þar sem ég þarf að vakna í vinnuna eftir nokkra tíma. Ég vaknaði náttúrulega klukkan 11 áðan þannig það er spurning hvort ég nái að sofna. En Helgi kemur í vinnuna á morgun eftir 2ja vikna frí, þannig ég hugsa að morgundagurinn eigi eftir að verða góður.

Athugasemdir (