Deila á Facebook
« Laugardagurinn | Aðalsíða | Tívolí »

Smá bloggleysi & óhapp
Skrifað fimmtud. 19. júlí 2007 - 00:25
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vil bara byrja á því að afsaka bloggleysið. Það hlýtur að vera martröð að hafa ekki hugmynd um hvað hefur verið að gerast í lífi mínu.

Á fimmtudaginn síðasta lenti ég í leiðinlegu atviki. Ég lenti í því að missa gleraugun mín af annari hæð í vinnunni, þannig þau skekktust og rispuðust. Ég var ekki alveg sáttur, en þar sem klukkan var að verða 6 var ekki mikið hægt að gera í því að svo stöddu. Ég fór samt og lét rétta þau á föstudeginum og pantaði tíma í sjónmælingu á mánudaginn.

Á mánudaginn fór ég svo í sjónmælingu niður í Kringlu. Þegar ég kom sá ég voða þröngt stæði og ákvað að reyna að leggja í það, en það var svo þröngt að ég vissi að eigendur hinna bílanna myndu skella hurðunum í bílinn minn við að reyna að komast inn í bílana sína, þannig ég lagði eins nálægt öðrum bílnum og ég gat. Ég var samt ekki að útiloka að bílstjórinn kæmist inn, þar sem farþegahurðin sneri í átt að mér. En við þessa heimskulegu tilraun spegillaus lenti ég í smá óhappi. Ég fór víst aðeins of nálægt og straujaði alla hliðina á báðum bílunum. Nei nei, ég segi svona, en ég rispaði samt báða bílana.

Ég trúði þessu ekki, þannig ég lagði bílnum mínum og fór og skoðaði hinn bílinn. Þá var þessi rispa á hliðarlistanum á hinum bílnum.

Ég þoli ekki fólk sem stingur af við svona, þannig ég hringdi bara upp í Umferðarstofu og bað þá um að gefa mér nafnið á eigandanum skv. bílnúmerinu. Svo hringdi ég bara í eigandann og sagði honum frá þessu.

Eigandinn kom svo fljótlega en þau voru mér svo hjartanlega þakklát fyrir að hafa látið vita, en ekki bara stungið af eins og flestir myndu gera. Þau treystu mér m.a.s. það vel að þau ákváðu að sleppa því að gera skýrslu og tóku bara niður númerið hjá mér í staðinn, og ætluðu bara að hringja á næstu dögum. Þau hafa nú ekki enn hringt.

En djöfull líður manni eitthvað vel af því að hafa ekki stungið af. Ég bjóst nú ekki við því, en þar sem þau voru svo ánægð að ég hafi ekki stungið af, leið mér bara einhvern veginn vel.

En eftir þetta fór ég bara í sjónmælingu. Svo pantaði hún ný gler í gleraugun mín, tók gleraugun af mér og lét mig fá linsur í staðinn, til að ég gæti séð eitthvað yfir daginn.

Ég skellti mér svo upp í Víkur Ós til að fá tilboð í málun á rispunni ofl. Svo fór ég bara aftur í vinnuna.

Ég kalla þetta góða þjónustu hjá Auganu í Kringlunni, þar sem gleraugun voru tilbúin með nýju glerjunum í, kl 6 þennan sama dag. Glæsilegt!

Seinna um kvöldið fór ég bara til Grétars og hjálpaði hann mér með að þrífa og bóna bílinn minn. Það er svo langt síðan maður gerði það síðast, vegna þess hvað það er mikið að gera hjá manni alltaf hreint. En þarna var laus tími þannig maður skellti sér í það.

Á þriðjudag eftir vinnu skellti ég mér bara í ræktina. Svo eftir á fórum við pabbi upp í hús að tæma heilt Eurobretti af steiningalímspokum og til að skoða nýjasta nýtt. Já, það er sko búið að steina húsið þeirra Ellu og Gumma. Algjör snilld, grátt steiningalím með svörtum, gráum og hvítum steinum. Svo eru innskotin á hliðunum dökk. Þetta kemur svo vel út að það er ekki eðlilegt, enda vorum við heilt kvöld að rúnta um allan bæinn í leit að flottri veggjaklæðningu. Þetta er svo spennandi!

En núna í dag gerði ég ekkert, nema bara að vinna og slappaði svo af það sem eftir var af kvöldinu.

En ég ætla að enda þetta blogg á þessari skemmtilegu mynd þar sem bíllinn minn er nýþrifinn- og bónaður í forstjórabílastæðinu...





Athugasemdir ():