Tívolí
Skrifað föstud. 20. júlí 2007 - 19:20Í gær skellti ég mér í tívolíið með Grétari, en þar hittum við Steina, Írisi kærustuna hans, systir hans Steina, Ingu og einhverja aðra vinkonu Írisar.
Við Grétar fórum nú ekki í neitt tæki, en Steini og hin fóru. Ég var ekki alveg í stuði til að eyða pening, vera flögurt og fá hausverk. Annars hefði ég ábyggilega farið.
Á meðan við vorum í tívolíinu bauð Halli okkur á Tropical, sem er gamli Klúbburinn, og bað okkur um að taka eina vinkonu hans með. Ég hringdi í þessa vinkonu hans og tók hana og vinkonu hennar með.
Við fórum svo á Tropical og hittum allt ÍTR liðið sem Halli er að vinna með. Ég var nú fyrst bara rólegur og byrjaði bara í kókinu, þar sem ég var á bíl, en það endaði með því að ég fékk mér einn bjór. Svo stuttu seinna fór ég bara heim að sofa.
Í morgun vaknaði ég rosa slappur. Nei, þetta var ekki þynnka. Ég var bara að drepast í maganum og ákvað að hringja mig inn veikan í vinnuna.
Ég svaf til svona hádegis og vaknaði þá og fór bara í tölvuna. Það var hundleiðinlegt að vera bara heima, þar sem það var ekkert hægt að gera. Ég fór þá bara í það að laga myndaalbúmið mitt, en sum albúmin voru biluð. Það er samt komið í lag núna.
En áfram með myndapælinguna. Ég var að spá í að fá mér myndavél til að ég þurfi ekki alltaf að vera að fá lánaða vélina hjá pabba. Ég er nú ekki búinn að spá mikið í þessu en ég held að Sony Cyber-shot verði fyrir valinu, þar sem Helgi á gamla Cyber-shot og líkar hún vel. Þessi sem ég er að spá í er 7,2 MP, og kostar einungis 20.000 kr. - sem er nokkuð gott!
Ég er nokkuð ákveðinn í að skella mér á vélina um mánaðarmótin.

Athugasemdir (