Deila á Facebook
« Tívolí | Aðalsíða | Jafnrétti - Pissupæling »

Helgin 20. - 22. júlí
Skrifað mánud. 23. júlí 2007 - 04:08
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta var nú bara hin fínasta helgi. Ég var bara edrú á föstudaginn út af því að ég var að fara að vinna á laugardaginn. En svo á laugardaginn drakk ég og skellti mér að sjálfsögðu í bæinn.

Á föstudaginn um kvöldið kíkti ég aðeins til Helga. Andri var þá hjá honum og voru þeir að drekka. Ég var reyndar að fara að vinna með þeim daginn eftir en þeir mæta alltaf þunnir í vinnuna á laugardögum þannig þeir eru alveg vanir þessu. Ég var hins vegar búinn að vera veikur fyrr um daginn þannig ég ákvað að sleppa því að drekka og vera bara á bíl.

Við skelltum okkur niður í bæ og lagði ég leynistað rétt hjá Hverfisbarnum, en ég held nú að þetta sé ekki mikill leynistaður ennþá, þar sem það var allt troðið af bílum þar. Ég tróð mér nú samt þarna.

Við kíktum aðeins á Hverfisbarinn en stoppuðum nú ekki lengi, þar sem það var ógeðslega leiðinlegt þar. Mig langaði að kíkja á Sólon og Helga líka, en Andri vildi vera eftir. Að lokum kom hann með. Við hittum Elínu og vinkonur hennar, en þær stoppuðu nú ekki lengi og kvöddum við þær bara og fórum á Sólon.

Ég verð nú bara að segja að ég er ánægður með herta gæslu á Hverfisbarnum, og gæti það orðið til þess að maður kíkti eitthvað oftar þangað. Dyraverðirnir spurðu Andra og Helga um skilríki, og það dugði m.a.s. ekki eitt skilríki, heldur þurfti Andri að sýna annað skilríki. Ég er mjög ánægður með þetta!

En á Sólon var nú bara þessi reglulegi föstudagur, ekkert allt of mikið af fólki og bara ekkert gaman. Ég reyndi nú bara að gera eins vel úr þessu og ég gat og held ég að það hafi nú bara tekist ágætlega. Ég gat allavega dansað og hagað mér eins og drukkinn maður, enda sá enginn muninn.

En eftir smá dans ákvað ég bara að fara heim. Karlotta og Gerður vildu þá fá far og leyfði ég þeim það. Helgi kom líka með en Andri ákvað að vera eftir. Hann nær alltaf að redda sér heim hversu fullur hann verður þannig það er bara gott mál og þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að hann drepist einhverstaðar, sé rændur og jafnvel nauðgað.

Andri, Helgi og ég á Sólon þetta ágæta kvöld. Ég að sjálfsögðu góður á því edrú með kók í hönd. Helgi er líka eiturferskur þarna enda strækaði hann þessa ágætis pósu



Á laugardaginn vaknaði ég svo ekkert þunnur og dreif mig í vinnuna. Að vísu mætti ég hálftíma of seint en það var eingöngu vegna þess að ég ákvað að leggjast aftur í rúmið eftir að hafa farið á fætur. Ekkert allt of gáfulegt.

Það var hundleiðinlegt í vinnunni, en aðallega vegna þess hvað það var mikið að gera og út af veðrinu.

Eftir vinnu var ég byrjaður að sötra í kringum 10 leytið en Helgi og Andri komu og sóttu mig um 2 leytið og skelltum við okkur bara niður í bæ. Við lögðum aftur á leynistaðnum og röltum yfir á Hverfisbarinn.

Fyrir utan voru einhverjar ungar stelpur að reyna að komast inn í VIP röðinni. Dyravörðurinn spurði þær allar um skilríki og sýndu þær honum þau. Svo bað hann um álit annars dyravarðar um hvort þetta væru þeirra skilríki, en þegar hann var ekki heldur viss spurði hann þær um annað skilríki, en þær voru ekki með annað, þannig þær komust ekki inn. Þetta eru gríðarlegar breytingar frá því hvernig þetta var áður fyrr þarna á Hverfisbarnum. Ánægður með þetta!

Eftir að við komum inn fórum við bara upp á efri hæðina. Ég hitti vinkonu Davíðs, sem var að vinna með mér á Kringlukránni, og spurði hvort við mættum setjast hjá þeim, og leyfðu þær okkur það. Hún var með einhverri vinkonu sinni sem tók þátt í söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd Verzló, en ég kannaðist ekki við hana vegna þess að hún var ekki með gleraugu þarna. En svo þegar hún sagði okkur það mundi ég eftir henni.

Andri skrapp á barinn og bað ég hann um að kaupa eina kók handa mér. Hann kom til baka með eitt versta kók sem ég hef smakkað á ævi minni. Það var svo vont að ég hélt hann hefði beðið um áfengi út í það, enda spurði ég alla sem voru í kringum okkur hvort það væri eitthvað úti í þessu.

Eftir smá stund þarna uppi skelltum við okkur niður. Þar hittum við einhverja félaga Andra og spjölluðum aðeins við þá. Við sáum líka minnstu og unglegustu stelpu sem við höfum séð, en við héldum í alvöru að hún væri 12 ára. Það hefur örugglega tekið smá tíma fyrir hana að sannfæra dyraverðina um að hún væri orðin nógu gömul. Hahaha!

Seinna um kvöldið kíktum við út. Á leiðinni á Sólon hittum við Gumma, Palla og Halla. Eitt orð handa Halla: „RITALIN“!

Við komum líka við á Oliver, en við nenntum ekki að bíða í 300 manna röð þannig ég reyndi að komast inn í VIP en það tókst ekki. Ég bað dyravörðinn um að sækja Eygló, þar sem hún er að vinna á barnum þarna, en hann neitaði bara og sagði að hún mætti ekki fá neinar pásur. Hvað er hún í þrælkunarvinnu þarna eða?! Ég náði ekki heldur í símann hennar þannig við enduðum bara á því að fara á Sólon.

Ég man nú ekki mikið hvað gerðist inn á Sólon en það var margt um mannin þar, enda bæði venjulega og VIP röðin stútfull. Við fengum þó ekta VIP inngöngu, ekki slæmt það. Ég man hins vegar að ég þurfti alltaf að bíða heillengi eftir því að komast inn aftur eftir að hafa fengið mér að reykja, þar sem reykingagirðingin var ekki til staðar, þannig maður þurfti að fara alla leiðina út til að reykja.

Ég man eitt skiptið þegar ég fór út að reykja að ég sá slagsmál aldarinnar, sem ég hefði hugsanlega borgað fyrir að sjá. Þau voru á milli Dabba, sem kenndur er við Grensás, og Halla, sem kenndur var við Fazmo. Þeir voru nú vinir þannig ég veit ekki hvað olli því að þeir fóru að slást, en þetta voru samt svakaleg slagsmál. Um leið og þau byrjuðu hópaðist 1000 manns í kringum þá, enda eiga þeir báðir ófáa vini. Eftir þetta veit ég bara að ég myndi ekki vilja rekast á Halla í dimmu húsasundi. Gaurinn kann sko að slást!

En eftir að Sólon lokaði man ég að ég náði varla að halda mér á fótum. Ég man bara að Elli, sem er að vinna með mér í Húsasmiðjunni, og Júlli þurftu að hálfpartinn halda í mig svo ég myndi ekki detta. Svo var Jói vinur Ella að deyja úr hlátri yfir því hversu fullur ég var. Alltaf ágætt að skemmta mönnum á minn eigin kostnað!

Við fórum svo á Pizza King og fengum okkur að borða, en Elli bað mig um að lána sér fyrir tveim pizzasneiðum og kók, og sagðist hann ætla að borga mér til baka í formi sígarettupakka. Ég samþykkti það en ég held að hann hafi verið að reyna að plata mig, þar sem flestir sem eru svona fullir eins og ég var þarna, hefðu ekki munað neitt daginn eftir, en sem betur fer er ég með aðeins frábrugðnara minni en flestir.

Eftir að við borðuðum kom Eygló æðislega og sótti mig og skutlaði mér heim. Ég man að hún var með einhverri stelpu, sem var klædd og með hárið eins og sígauni, og man ég að ég gerði óspart grín að henni. En takk æðislega fyrir farið, Eygló mín.

Á sunnudaginn skellti ég mér svo út að borða með Guggu fyrrverandi, þar sem okkur leiddist báðum svo svakalega. Við komum við á American Style og ég fékk mér æðislegustu máltíð í heimi. Það tók samt fáránlega langan tíma fyrir þá að steikja þennan eina hamborgara og vil ég bara veita þeim óþökk fyrir það!

Eftir matinn skelltum við okkur bara í bíó á myndina Death Proof, sem leikstýrð er af Quentin Tarantino. Við fórum ekki einn í bíó, við fórum með Gumma, Andra, Helga og Elínu, og vil ég bara þakka þeim kærlega fyrir bíóið.


Þessi mynd fjallar um Mike, sem er áhættuleikari, og á bíl sem er mjög öruggur (dauða varinn). Hann fær einhverja nautn út úr því að drepa fólk á bílnum sínum, en það kemur honum verulega á óvart þegar það er svarað honum til baka í sömu mynt.

Þessi mynd er verulega steikt og mjög frábrugðin myndum sem maður er vanur að sjá, og til að byrja með var ég næstum því búinn að labba út af henni, en svo í sirka miðri myndinni batnaði hún allverulega og í lokin fannst mér hún bara vera hin ágætasta ræma. Maður má ekki fara á hana með of miklar væntingar, og verður maður að gefa henni séns. Hún átti það samt til að sleppa köflum, vera svarthvít í smá stund, o.s.frv., en ég veit ekki hvort það sé sýningastjóranum að kenna eða bara hvort þetta sé stíll Tarantino's.

3/5

En núna ætla ég bara að drífa mig í háttinn, þar sem það er víst vinna eldsnemma í fyrramálið.




Athugasemdir ():