Deila á Facebook
« Culiacan | Aðalsíða | Palli does it again »

Lindsay Lohan
Skrifað fimmtud. 26. júlí 2007 - 23:23
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég á bara ekki til í orðum hvað þessi gella fer í taugarnar á mér. Hún byrjar feril sinn vel, en endar í hömlulausri dóp- og áfengisneyslu.

Hún viðurkennir samt vanda sinn og skellir sér í meðferð. Svo í meðferðinni fær hún leyfi til að halda upp á afmælið sitt en fellur í veislunni.


Hún hefur núna verið tvisvar tekin af löggunni fyrir að keyra undir áhrifum áfengis, og í seinna skiptið próflaus með kókaín í fórum sínum.

Ég skil ekki alveg hvað hún er að spá. Frægð hennar hófst þegar hún lék litlu sætu freknóttu stelpuna í myndinni The Parent Trap, en frægðin hefur greinilega stigið henni smávegis til höfuðs með sjálfræðinu.

Svo í dag er hún búin að sofa hjá flest öllum frægum gaurum í Hollywood, en það bætir nú mannorð hennar lítið því núna er hún líka, ofan á allt annað, drusla!

Ég vil að hún fái sama dóm og Paris Hilton, þar sem hún virðist ekki ætla að læra neitt!

Hver er svo næst... Hilary Duff eða Olsen tvíburarnir?




Athugasemdir ():