Deila á Facebook
« Palli does it again | Aðalsíða | Ekkert að gerast »

Helgin 27. - 29. júlí
Skrifað þriðjud. 31. júlí 2007 - 02:12
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég var nú bara edrú og fór snemma að sofa á föstudeginum en á laugardaginn var ég bara að vinna en kíkti svo niður í bæ eftir það.

Föstudagurinn hjá mér var nú bara mjög rólegur. Um daginn fór ég bara í vinnuna og ræktina, en svo seinna um kvöldið bað ég Karlottu um að klippa mig, þar sem ég var kominn með meme hár (eins og Helgi vill kalla það) og út af því að mamma er úti í útlöndum (hún klippir mig venjulega). Karlotta var auðvitað til í það og sótti ég hana svo bara. Takk fyrir klippinguna, Karlotta.

Seinna um kvöldið horfði ég á The Simpsons á íslensku og líkaði engan veginn vel. Þetta kom allt saman hræðilega út. Mér fannst raddirnar engan veginn passa við og fattaði engan brandara í þættinum. Baugur hvað? Hvernig kemur hann Simpsons við? En það með að myndin sjálf sé einnig þýdd á íslensku finnst mér svolítil vitleysa, þar sem Simpsons er ekki ætlað börnum og það fer engin heilbrigð fullorðin manneskja að sjá myndina á íslensku, nema þá eingöngu í tilraunaskyni og vegna einskærrar forvitni.

Á laugardaginn fór ég svo bara að vinna. Ég get nú alveg sagt að það var sko ekki mikið að gera. En strax eftir vinnuna skellti ég mér í ríkið og keypti kippu af bjór fyrir aleiguna mína. Er þetta þá ss. orðið vandamál?

En eftir að ég kom heim bauð Karlotta mér í VIP partý á Sólon, þar sem það var verðlaunaafhending fyrir strand-handboltamótið hjá Remax, sem var fyrr um daginn. Steini og Gummi tóku víst þátt og voru í liði sem hét Sólstrandargæjarnir. Ég vil bara óska þeim innilega til hamingju með frammistöðu sína!

Ég að sjálfsögðu þáði þetta hugljúfa boð hennar Karlottu og ákvað því að skella mér á Sólon. Við vorum mætt sirka 15 mín yfir 9 en ég hef aldrei á ævi minni farið svona snemma á Sólon í djammskyni, bara til að fá mér að borða eða horfa á boltann.

Ég góður á því á leiðinni á Sólon


Eftir að við komum á Sólon tók smá tíma fyrir dagskrána að byrja. Ég gæddi mér samt á nokkrum sígarettum og nokkrum fríum bjórum á meðan. Svo hitti ég Elínu kærustu Helga og Auði kærustu Jóa. Þær voru þarna því Elín hafði tekið þátt í mótina fyrr um daginn. Helgi og Jói voru samt ekki þarna, en þeir komu svo síðar.

Ég búinn að drekka kannski aðeins of mikið af fría bjórnum þarna


Seinna um kvöldið þegar VIP partýið var búið og byrjað var að hleypa almenningi inn hitti ég Eygló, Gumma, Jóa, Helga, Andra, Svenna, ofl. Þetta var ágætt kvöld en ég man að ég tók Salsa þarna um kvöldið óspart. Helgi þoldi ekki hversu hommalegur ég var og lét mig reglulega vit af því.

Ég í fjörugum Salsa dansi á Sólon



Seinna um kvöldið kíkti ég með Eygló yfir á Glaumbar, þar sem ég hitti Gumma, Lalla, Berg, Hörð, Fannar, ofl. Ég sat þarna bara í makindum mínum með Berg, Herði og Eygló þegar einhver stelpa kemur með bjór handa mér og auðvitað þáði ég hann með þökkum en spyr hvers vegna hún sé að gefa mér bjór. Þá segir hún að hún sé ekki að gefa mér bjór, heldur Kamil kærastinn hennar! Svo spjölluðum við bara saman á rólegu nótunum, og út frá því sem fór okkar á milli held ég að allt sé á hreinu núna.

Það var nú ekkert allt of skemmtilegt þarna, en það hefði verið betra ef Eygló hefði ekki bara verið í tómu rugli þarna. Ég fór á barinn fyrir hana þarna um kvöldið en hún átti ekki inneign þannig ég þurfti að borga allt. Mér fannst það ekkert allt of sniðugt, þar sem ég sjálfur átti nær engan pening. Eftir þetta ákvað ég að beila.

Ég fór aftur á Sólon en það var svo ógeðslega mikil röð að ég komst ekki inn. Ég hitti Ella og Pétur, sem eru að vinna með mér, fyrir utan í VIP röðinni. Eftir smá bið komumst við loks inn, en þetta var hundleiðinleg löng bið. Það var víst einhver 27 ára stelpa lamin þarna í röðinni og bitið af henni eyrað, en ég sá það því miður ekki. Þetta gerðist samt einmitt á þeim tíma sem ég var í VIP röðinni. Skrítið að ég hafi ekki tekið eftir þessu.

En það var nú bara hundfúlt inni á Sólon eftir að ég komst inn. Stuttu eftir að við komumst inn var spilað Nínu (síðasta lagið), þannig við þurftum að búa okkur undir heimför.

Eftir að Sólon lokaði skrapp ég á klósettið í stiganum. Ég man að það var læst þegar ég kom að því þannig ég beið bara rólegur. Svo komu einhverjar tvær stelpur labbandi niður stigann og sagði ein önnur stelpan nokkrum sinnum við vinkonu sína: „Bíðum þarna á eftir hommanum“. Ég leit í kringum mig og ég var eini strákurinn þarna, þannig hún hlaut að vera að tala um mig, þannig ég sagði: „Ég heyri alveg hvað þú ert að segja“. Þá gaf hún mér einhvern skrítinn svip og vinkona hennar varð hálf vandræðaleg og varð eitt spurningamerki í framan.

Eftir að viðkomandi var búinn á klósettinu komst ég loks að. Dónalega stelpan sagði mér að flýta mér geðveikt um leið og ég labbaði inn, þannig ég slappaði bara af í svona 5 mínútur inni á klósetti og var EKKERT að flýta mér. Svo þegar hún var gjörsamlega orðin brjáluð á biðinni labbaði ég sallarólegur út og sagði við hana: „Æj fyrirgefðu, ég þurfti að hommast svo mikið“ og hún varð eins og skítur í framan!

Ég rölti svo niður á Hlöllavagninn og voru Ella frænka og Sæmi kærastinn hennar að vinna, þannig þau voru það elskuleg að gefa mér að borða og far heim. Takk æðislega fyrir það, elskurnar!

Ég kom heim klukkan sirka 8 um morguninn og svaf til 8 um morguninn á mánudeginum. Þannig ég svaf í 24 klst, sem telst vera rosalega mikið! Heill sólahringur!

Svo í dag ákvað ég að sleppa því að fara til Eyja núna í ár, en það er vegna ýmissa vandamála. Aðallega samt vegna þess að ég gleymdi að borga og fékk eftir það far á ömurlegasta tíma í heiminum og það að ég ákvað að gera einum aðila þann greiða að fara ekki. Ég mun samt fara á næsta ári, en það verður bara enn betur undirbúið. Maður segir þetta samt alltaf, en ég stefni allavega á það og held í vonina um að það eigi eftir að rætast. Þeir aðilar sem halda að þetta sé bara aumingjaskapur í mér mega bara halda það, þar sem mig langaði svo ógeðslega mikið að fara, en maður getur víst ekki leyft sér allt í lífinu.

En allavega ætla ég að fara að sofa núna. Í lokin er ein mynd af mér og Eygló á Sólon á laugardaginn...





Athugasemdir ():