Innipúkinn 2007 - fös & lau
Skrifað sunnud. 5. ágúst 2007 - 22:36Jæja, ég er bara búinn að hafa það náðugt í bænum. Ég kíkti bæði í bæinn á föstudaginn og á laugardaginn, en svo er aðal djammið í kvöld. Maður er varla að nenna þessu en manni snýst alltaf hugur þegar maður rennir fyrsta bjórnum niður. 
Það var SingStar partý á Sólon á föstudaginn og fórum við Karlotta saman niður í bæ. Ég tók ekki þátt í SingStar'inu, en það var einungis vegna þess að ég fann ekkert lag sem hentaði mér nógu vel.

Seinna um kvöldið var ég kominn með svolítið leið á Sólon, þar sem í hvert skipti sem ég skrapp í sígó þurfti ég að bíða heillengi í röð eftir því að komast aftur inn. Ég og Elli drifum okkur þá bara á smá pöbbarölt, en við kíktum m.a. annars á Hverfis, Barinn og Hressó.
Ég hitti m.a. Katrínu.is á Barnum. Það eru þó nokkur ár síðan ég hitti hana síðast, en það var óvenju gaman að hitta hana aftur.
Okkur líkaði best við Hressó, þar sem það er sér skáli til að reykja í. Það var náttúrulega allt annað líf!
Þegar við vorum á Hressó að dansa sá ég sæta stelpu á dansgólfinu. Ég horfði á hana og brosti til hennar, hún brosti á móti. Svo kom einhver útlendingur að mér og sagði: „Go dance with her!“ og ýtti mér að henni. Ég fór þá og dansaði við hana. Hehehe, skemmtilegt það. Svo á endanum komst ég að því að þessi stelpa væri vinkona stelpu sem ég hef lítið sem ekkert álit á. En það er ábyggilega henni að þakka að stelpan þóttist ekki þekkja mig seinna um kvöldið.
Eftir þetta fór ég bara heim. Eygló darling var svo góð að gefa mér far í lok kvöldsins, en ég vil þakka henni kærlega fyrir það.
Á laugardaginn vaknaði ég ógeðslega seint eða kl 12 um kvöldið. Ég fór bara og tók mig til og tók svo leigubíl niður í bæ.

Leigubílstjórinn var mesta egó sem ég hef á ævinni kynnst, en hann var að segja mér endalausar afrekssögur frá því þegar hann lamdi dyraverði, hversu mikið hann drakk á síðustu Þjóðhátíð og hversu oft hann hefur setið inni. Flottur gaur!
En ég kom aðeins við á Hlöllavagninum og heilsaði upp á Sæma og Ellu frænku. Svo rölti ég bara á Sólon.
Ég stoppaði nú stutt þar, þar sem ég var einn. Ég hringdi þá í Smára og var hann á Grand Rokk. Ég fór þangað en þá var búið að loka, þannig við röltum á Prikið og hittum m.a. Smára, vin hans Smára. Haha!
Það var ógeðslega pakkað á Prikinu. Ég var ekki að fíla þetta þannig ég stakk upp á því að við færum á Sólon, og gerðum við það. Ég þurfti að bíða heillengi í VIP röðinni eftir að komast inn, en ég þekkti nánast enga dyraverði þarna, þar sem þeir voru allir nýir.
Smári skrapp inn og sótti jakkann sinn en kom svo strax aftur út. Þá fóru þeir Smárarnir bara eitthvað og ég varð bara eftir á Sólon. Ég hitti m.a. Alexíu, Maríönnu, Svenna, Mumma, Arnar, Svenna, Laylu, ofl. þetta kvöld. Svona á heildina litið var þetta bara ágætt kvöld.
Svo í lok kvöldsins skutlaði Eygló mér heim, en við enduðum auðvitað ekki kvöldið án þess að fá okkur pizzu á Pizza King. Takk aftur fyrir farið, elskan.
Svo núna í kvöld ætla ég að taka vel á því, en ég er aðeins byrjaður að sötra. Ég ætla að reyna að taka eins mikið af myndum og ég get og nenni.
En svona í lokin vil ég bara benda ykkur á myndirnar sem eru komnar inn frá helginni. Ég mun auðvitað taka fleiri.

Karlotta og ég

Þetta var eina myndin sem ég tók á laugardaginn, en hún var í byrjun kvöldsins áður en ég fór niður í bæ. Slappur, I know. ![]()

Athugasemdir (