Innipúkinn 2007 - sunnudagur
Skrifað þriðjud. 7. ágúst 2007 - 01:45Ég byrjaði bara á því að taka mig til fyrir kvöldið, þar sem það voru allir búnir að vera að segja mér að þetta væri aðal djamm kvöldið, en svo kom allt annað í ljós. Ég bauð bara Huldu og vinkonum hennar heim, þar sem þær voru á rúntinum.
Við settumst bara aðeins niður og spjölluðum saman. Aðal umræðuefnið hjá þeim var heimsendir og eitthvað typpafjall sem á víst að gjósa fljótlega. Huldu fannst það víst voða fyndið.
En svo skutlaði Hulda mér bara niður í bæ. Takk æðislega fyrir það.
Ég rölti yfir á Sólon en í fyrsta skipti um þetta leyti um helgi sá ég hurðina lokaða og enga röð. Já, það var LOKAÐ! Ég átti ekki orð.
Ég stóð þá bara þarna fyrir utan og reyndi að hringja í Karlottu, en um það leyti kom Rikki G í dyrnar og spjallaði við mig. Þá var víst ekkert fólk í bænum, þannig þau ákváðu bara að hafa lokað. Mér fannst það ömurlegt, en hann var á sama máli.
Ég kvaddi bara Rikka og rölti á Hressó, þar sem ég hitti Karlottu, Maríönnu, Svenna og Adda. Við röltum svo yfir á Glaumbar, þar sem allt var dautt.

En um þetta kvöld var Hressó greinilega málið, þar sem við festumst bara þar mestan hluta kvöldsins. Fínn staður, fín tónlist, fínt fólk, fínn reykingaskáli.
Ég hitti fínt fólk þarna um kvöldið, en aðilarnir sem ég hékk aðallega með þarna um kvöldið voru Karlotta, Maríanna og Svenni.
Seinna um kvöldið ákváðum við að rölta eitthvað og enduðum á Hverfis. Þar hitti ég Eygló, Laylu, Júlla, Elfu, Ívar, Kalla, Einar, ofl. gott fólk. Ég vil einnig þakka Laylu kærlega fyrir dansinn þarna Hverfis, þar sem við gjörsamlega áttum dansgólfið.

Ég man að um kvöldið á Hverfis keypti ég mér tvisvar á barnum uppi vodka + burn, og borgaði í bæði skiptin 850 kr. Svo seinna um kvöldið fór ég niður að dansa og keypti mér á barnum þar það sama og borgaði 1000 kr. Ég þrætti að sjálfsögðu við stelpuna á barnum, en hún var bara dónaleg þegar ég reyndi að segja henni að ég hefði borgað 850 á barnum uppi. Hún vildi meina að þetta hefðu bara verið mistök uppi. Já, svakaleg mistök þegar ég borga oftar en einu sinni 850 kr.!
En eftir að Hverfisbarinn lokaði kíktum við Eygló á Pizza King, eins og venjan var alltaf í lok kvöldsins um þessa helgi. Við hittum þá Betu vaktstjóra á Kringlukránni, og var hún auðvitað súper hress - eins og alltaf!
Við hittum líka Oddrúnu og Röggu, en Ragga og Eygló enduðu á Subway eftir að hafa borðað á Pizza King. Feitu feitu!
Ég var um það leyti alveg að niðurlotum kominn, þannig ég dreif mig bara upp í rúm um leið og ég kom heim.
Þetta var ágætis helgi, þó ég hefði mikið meira verið til í að vera með strákunum á Þjóðhátíð. En takk annars fyrir helgina, Karlotta, Eygló og Svenni. Þið björguðuð henni gjörsamlega.
En svona í lokin langaði mig bara að benda á að seinni hluti myndanna frá þessari ágætu verslunarmannahelgi er kominn inn!
Við settumst bara aðeins niður og spjölluðum saman. Aðal umræðuefnið hjá þeim var heimsendir og eitthvað typpafjall sem á víst að gjósa fljótlega. Huldu fannst það víst voða fyndið.
En svo skutlaði Hulda mér bara niður í bæ. Takk æðislega fyrir það.
Ég rölti yfir á Sólon en í fyrsta skipti um þetta leyti um helgi sá ég hurðina lokaða og enga röð. Já, það var LOKAÐ! Ég átti ekki orð.
Ég stóð þá bara þarna fyrir utan og reyndi að hringja í Karlottu, en um það leyti kom Rikki G í dyrnar og spjallaði við mig. Þá var víst ekkert fólk í bænum, þannig þau ákváðu bara að hafa lokað. Mér fannst það ömurlegt, en hann var á sama máli.
Ég kvaddi bara Rikka og rölti á Hressó, þar sem ég hitti Karlottu, Maríönnu, Svenna og Adda. Við röltum svo yfir á Glaumbar, þar sem allt var dautt.

Karlotta og Svenni
En um þetta kvöld var Hressó greinilega málið, þar sem við festumst bara þar mestan hluta kvöldsins. Fínn staður, fín tónlist, fínt fólk, fínn reykingaskáli.
Ég hitti fínt fólk þarna um kvöldið, en aðilarnir sem ég hékk aðallega með þarna um kvöldið voru Karlotta, Maríanna og Svenni.
Seinna um kvöldið ákváðum við að rölta eitthvað og enduðum á Hverfis. Þar hitti ég Eygló, Laylu, Júlla, Elfu, Ívar, Kalla, Einar, ofl. gott fólk. Ég vil einnig þakka Laylu kærlega fyrir dansinn þarna Hverfis, þar sem við gjörsamlega áttum dansgólfið.

Elfa og Layla

Athugasemdir (