Afmæli Valdísar
Skrifað laugard. 11. ágúst 2007 - 19:30Ég skellti mér í gærkvöldi í surprise afmælisveislu til Valdísar, kærustu Rikka G. Þetta var frábært kvöld og vil ég bara þakka öllum kærlega fyrir það. Aðal ástæðan fyrir djamminu þetta kvöld var Gay Pride ballið á NASA, þar sem Páll Óskar átti að vera að spila, en svo var það ekkert þetta kvöld, þannig við Grétar urðum frekar fúlir.
Ég byrjaði auðvitað á því að fá mér einn bjór og taka mig til fyrir kvöldið. Svo kom Grétar og sótti mig og við fórum á Hverfisbarinn.
Þegar við komum sat fólk bara og spjallaði saman. Við settumst bara þarna og fengum okkur ískaldan bjór á krananum.

Svolitlu seinna var fengið alla til að fara inn í eitt horn og láta lítið á sér bera. Svo þegar Valdís afmælisbarnið og Rikki G löbbuðu inn á Hverfis kallaði Rikki eftir einhverri stelpu sem var að vinna þarna og hún kallaði á móti og sagðist vera uppi, svo þegar þau komu labbandi upp stigann byrjuðu allir að syngja afmælissönginn. Henni brá víst ekkert smá.

Svo um kvöldið var bara drukkið endalaust af fríu áfengi þarna. Ég verð nú bara að segja að ég er rosa ánægður með hvernig þetta gekk allt saman, og vil bara þakka Rikka kærlega fyrir boðið í þetta frábærlega vel heppnaða surprise partý.
Svolítið seinna um kvöldið voru eiginlega allir farnir. Ég var samt eftir og tók afmælis salsa við afmælisbarnið, sem var æðislega gaman. Svo hitti ég Ómar og Erla var að sjálfsögðu þarna vinnandi á barnum.
Eftir góða dvöl á Hverfis skellti ég mér á Sólon. Það var svo mikið af nýjum dyravörðum þar að ég átti í erfiðleikum með að komast inn. Ég hitti Grétar, Danna, Jóa og Rafn. Ég og Grétar fengum að fara inn en ekki hinir, þannig það var erfið ákvörðun hvort maður ætti bara að fara inn eða fara aftur út til þeirra. Við enduðum bara á því að fara aftur út til þeirra.
Við röltum niður Laugarveginn og reddaði Grétar okkur inn á Club Óðal, þar sem við horfðum á nokkrar danssýningar. Svo kom ein af strippurunum og bauð mér einkadans á 14.000 kr. Ég sagðist þá bara vera trúlofaður 26 ára lögfræðingur. Hahaha, hún var ekki alveg að kaupa það að ég væri 26 ára, en á endanum trúði hún því. En hún var ekkert að láta mig í friði, hún vildi að ég myndi bara fá einkadansinn og sleppa því að segja tilvonandi eiginkonu minni frá því. Hún gafst samt upp á endanum þegar hún komst að því að ég væri trúr tilvonandi eiginkonu minni.
Þarna á Óðal reyndi Grétar þá fáránlega heimsku tilraun að taka mynd af stripparanum, hahaha. Það tókst ekki alveg, þar sem stripparinn, sem hann tók mynd af, brjálaðist og lét eigandann vita, sem lét Grétar eyða myndinni út. Hehehe.
Eftir þetta ævintýri ákvað Grétar bara að segja þetta gott og fara heim, en ég, Danni og Jói vorum eftir og skruppum aftur á Sólon. Þar týndi ég þeim og hitti Steina, Svenna og Ellu systir, sem voru gífurlega hress.
Við enduðum svo bara kvöldið á því að verða vitni að svakalegum slagsmálum. Það var gaur sem byrjaði að slást við Dabba Grensás, en honum tókst að losa sig við hann og byrjaði að ráðast á einhverja aðra. Svo þegar einn helmassaður lítill gaur fór að skipta sér að þessu, dró hann gaurinn í burtu og var ekkert auðveldur við hann. Þá byrjaði gaurinn stuttu síðar að kýla litla á fullu og steinrotaði hann. Þetta var fáránlega fyndið, þar sem þessi gaur var ekkert breiður en kunni greinilega að slást. Svo endaði þetta á því að allir réðust á hann, og þá var þetta stoppað og löggan kom. En djöfull var þessi gaur fáránlega harður af sér!
Eftir þetta allt saman endaði ég bara með því að fara heim, en Ella systir og Gummi kærastinn hennar skutluðu mér og Steina bara heim.
Myndirnar frá afmælisveislu Valdísar eru svo hér!
***
En núna í kvöld er svaka afmælispartý hjá Gumma Jónss. Ég fer að gera mig kláran fyrir það en ég var bara að vakna fyrir svolitlu, og er hálf þunnur ennþá. En ég verð góður á því í kvöld og mun taka mun fleiri myndir en ég gerði í gær.
Látum þetta bara gott heita í bili, en ég kem með nýtt blogg á morgun um hvernig kvöldið verður, ásamt myndum að sjálfsögðu!

Allir í góðu chilli á Hverfis

Valdís afmælisbarnið

Athugasemdir (