Afmæli & Gay Pride
Skrifað mánud. 13. ágúst 2007 - 02:54Á laugardaginn hélt Gummi upp á afmælið sitt og kíkti ég að sjálfsögðu í það. Hver heldur eiginlega upp á afmælið sitt og vinnur á barnum í veislunni við að svala þyrstum gestunum? Jú jú, auðvitað hann Gummi okkar! 

Ég mætti að vísu svolítið seint en ég missti af voða fáu, þar sem ég kom á réttum tíma í Burn-partýið og fyrir afmælismyndbandið sem Halli sauð saman.
Þegar ég kom var Grétar einmitt að prófa snuff-vélina góðu, sem hefur svalað í gegnum tíðina mörgum þurfandi neftóbaksneytendum, en ég smellti einmitt mynd af Grétari á meðan hann var að sýna öllum gestunum hvernig ætti að nota þetta stórskemmtilega tæki.

Um kvöldið var mikil trúbadorastemmning en Guðmann lék snilldarlega á gítarinn á meðan Halli söng falskt undir, en þeir voru ágætir saman. Einnig ber að taka fram að Halli var veislu- og skemmtanastjóri þarna í veislunni, þannig allt grín og glens var á hans ábyrgð, ásamt því að sjá til þess að gestirnir skemmtu sér vel. Það tókst líka bara ágætlega hjá honum.

Maður var fljótur upp á tærnar þarna um kvöldið en byrjað var á því að bjóða upp á bollu, sem blönduð var upp úr leyniuppskrift þeirra Gumma (afmælisbarnið) og Skúla á Sólon, en þessi fræga blanda ber heitið AYGO (eins og japanska bíldruslan). Einnig var boðið upp á ógrynni af bjór, en maður þurfti reyndar að þjóna sér sjálfur með hann og ganga sjálfur í hann inni í eldhúsi. Svo að lokum komu Burn gellurnar, og Gummi, sjálft afmælisbarnið, skellti sér í Burn skyrtuna og sörveraði fólkinu með ýmsum Burn drykkjum, þ.á.m. Burn með vodka, Burn með vodka og appelsínu/trönuberja-safa, og Burn í kampavín, sem var mjög spes á bragðið - en samt mjög gott!

En eins og í flestum (grunnskóla)partýum þarf alltaf eitthvað slæmt að gerast. Það voru allir mjög duglegir þarna um kvöldið að halda sér frá því, en það hlaut að koma að því að það gerðist eitthvað. En það var brotin rúða þarna um kvöldið, ásamt því að klósettið varð stíflað. Það kom svo í ljós hver hafði brotið rúðuna, en eigandinn mætti á svæðið alveg brjálaður og gerði hinn seki upp skuldir sínar við hann, enda alveg skiljanlegt þar sem ég sjálfur myndi sko ekki vilja lenda í eigandanum! Svo kom í ljós að klósettið var ekki stíflað af einhverjum, heldur hafði það stíflast af sjálfu sér, en einhver lyktartafla hafði festst í gatinu og allt flætt upp úr. Vonandi kemst það á hreint.
Fólk lét þetta samt ekki á sig fá og skemmti sér konunglega um kvöldið. Fólk var m.a.s. mjög stíft í drykkjunni en það var bara þambað beint af stút...

Seinna um kvöldið ákváðum við bara að slútta þessu og fara niður í bæ. Það tók rosalega langan tíma að koma öllu fólkinu út, enda gátum við ekkert bara hent því út og urðum því að leyfa því að bíða eftir leigubílum og svona.
Eftir að við komum öllum út var mér upp úr þurru boðið far niður í bæ. Það vantaði víst að fylla bílinn og var ég nærtækastur og þáði ég það að sjálfsögðu, og vil ég bara þakka Beggu kærlega fyrir að bjóða mér far með sér, Valdísi, Unu og einhverri vinkonu þeirra!

Þegar við komum niður í bæ tókum við einn Laugarveg, en það var öllum svo mál að pissa þannig við skruppum út að pissa á meðan Begga keyrði ein niður Laugarveginn. Við áttum sko að ná henni á Laugarveginum en eftir að ég var búinn að pissa týndi ég þeim öllum. Ég rölti niður Laugarveginn í leit að bílnum hennar en fann hann ekki, þannig ég fékk ekki tækifæri til að hitta þær aftur og þakka þeim fyrir farið. En þær vita það allavega að ég stend í þakkarskuld við þær fyrir þetta.
Ég hitti margt fólk á leið minni niður Laugarveginn en sumt af því fólki mætti alveg drekka aðeins minna næst. En svo rölti ég bara á NASA, þar sem Gay Pride ballið var. Ég og Grétar vorum búnir að ákveða að fara á það og gerðum við það líka. Ég beið eftir að Grétar og Jónas kæmu niður í bæ, en Jónas greyið tímdi ekki að borga sig inn og villtist eitthvað.
Ég fór bara inn á NASA og hitti þar fólkið sem ég var að vinna með á Kringlukránni, þ.á.m. Betu, Gumma og Smára. Svo kom loks Grétar og við fórum trylltir á dansgólfið og dönsuðum úr okkur allt vit.

Það var engin leið að verða fullur þarna á NASA, þar sem maður svitnaði bara öllu áfengi um leið og maður byrjaði að hreyfa sig eitthvað. Við Grétar fórum á 10 mínútna fresti á barinn og ég fékk mér skot í hvert skipti, ásamt bjór... en fullur varð maður ekki!
Ég hitti margt gott fólk þarna um kvöldið, en það sem stóð mest upp úr var æðislega fólkið af Kringlukránni og Dofri æðislegi, en hann er búinn að vera úti í útlöndum í 3 mánuði - og er ég búinn að sakna hans mikið!
Ég hringdi svo í 112 þarna um kvöldið en það var einhver stelpa sem datt af sviðinu og lenti liggjandi. Ég var smá stund að spá hvort ég ætti að gera eitthvað, en svo setti ég mig í hennar spor (nei ég henti mér ekki af sviðinu) og ákvað að hringja í sjúkrabíl. Ég hringdi á dansgólfinu en heyrði ekki neitt í símanum þannig ég hljóp að klósettunum þar sem hávaðinn var minni. Sjúkraliðinn heyrði þá í mér og ég í honum og sendi hann að lokum sjúkrabíl. Svo þegar ég fór aftur að „slysstaðnum“ var stelpan horfin. Ég var þá svo hræddur um að ég myndi lenda í vandræðum fyrir að gera svona at í 112, en eftir kvöldið fór ég út og sá hana þar með helling af lögreglu- og sjúkraliðsmönnum í kringum sig. Mér leið mun betur!
En um kvöldið á NASA kynntist ég stelpu sem bræddi mig gjörsamlega með allri sinni útgeislun, en ég bauð henni upp í einn dans, og var það einn af hápunktum kvöldsins. Fyrir forvitna þá fékk ég jú númerið hennar en hún er víst að fara eftir 4 daga út til Afríku... í 5 mánuði! Skemmtilegt það, en það var mjög gaman að dansa við hana.
Eftir að NASA lokaði fór ég bara með Jónasi, en ég hitti hann einhverstaðar þarna. Svo röltum við bara yfir á Hlöllavagninn og hittum Steina og Andra á leiðinni. Um það leytið hringdi síminn og var það Gugga. Ég fór þá á Hlöllavagninn og hitti hana. Svo hringdi hún í vin sinn sem skullaði okkur heim.
Í dag er ég bara búinn að vera þunnur, en ég skrapp með Grétari, Gumma, Gaua bro, Steina, Halla og Guðmanni og horfðum við á Manchester United spila á móti Reading, en staðan endaði að lokum 0-0. Sem betur fer horfði ég ekki á allan leikinn, þar sem þá hefði ég misst heilar 90 mínútur úr lífi mínu í ekki neitt! En svo skellti ég mér á KFC og fékk mér yndislega þynnkumáltíð, og að lokum fórum við upp í sal og þrifum hann hátt og lágt, en ég, Gummi og Gaui bro sáum um að skúra.
Þetta var annars bara ágætis helgi, og vil ég bara þakka öllum sem ég var með fyrir frábæra helgi.
Myndirnar frá kvöldinu eru svo hér!

Afmælisbarnið hann Gummi

Grétar að sýna virkni tækisins
Um kvöldið var mikil trúbadorastemmning en Guðmann lék snilldarlega á gítarinn á meðan Halli söng falskt undir, en þeir voru ágætir saman. Einnig ber að taka fram að Halli var veislu- og skemmtanastjóri þarna í veislunni, þannig allt grín og glens var á hans ábyrgð, ásamt því að sjá til þess að gestirnir skemmtu sér vel. Það tókst líka bara ágætlega hjá honum.

Halli og Guðmann sáu um að halda fjörinu gangandi
Maður var fljótur upp á tærnar þarna um kvöldið en byrjað var á því að bjóða upp á bollu, sem blönduð var upp úr leyniuppskrift þeirra Gumma (afmælisbarnið) og Skúla á Sólon, en þessi fræga blanda ber heitið AYGO (eins og japanska bíldruslan). Einnig var boðið upp á ógrynni af bjór, en maður þurfti reyndar að þjóna sér sjálfur með hann og ganga sjálfur í hann inni í eldhúsi. Svo að lokum komu Burn gellurnar, og Gummi, sjálft afmælisbarnið, skellti sér í Burn skyrtuna og sörveraði fólkinu með ýmsum Burn drykkjum, þ.á.m. Burn með vodka, Burn með vodka og appelsínu/trönuberja-safa, og Burn í kampavín, sem var mjög spes á bragðið - en samt mjög gott!

Gummi duglegur að hrista í liðinu þarna um kvöldið
En eins og í flestum (grunnskóla)partýum þarf alltaf eitthvað slæmt að gerast. Það voru allir mjög duglegir þarna um kvöldið að halda sér frá því, en það hlaut að koma að því að það gerðist eitthvað. En það var brotin rúða þarna um kvöldið, ásamt því að klósettið varð stíflað. Það kom svo í ljós hver hafði brotið rúðuna, en eigandinn mætti á svæðið alveg brjálaður og gerði hinn seki upp skuldir sínar við hann, enda alveg skiljanlegt þar sem ég sjálfur myndi sko ekki vilja lenda í eigandanum! Svo kom í ljós að klósettið var ekki stíflað af einhverjum, heldur hafði það stíflast af sjálfu sér, en einhver lyktartafla hafði festst í gatinu og allt flætt upp úr. Vonandi kemst það á hreint.
Fólk lét þetta samt ekki á sig fá og skemmti sér konunglega um kvöldið. Fólk var m.a.s. mjög stíft í drykkjunni en það var bara þambað beint af stút...

Sigrún Ýr og vinkona hennar þyrstar - eins og sjá má!
Seinna um kvöldið ákváðum við bara að slútta þessu og fara niður í bæ. Það tók rosalega langan tíma að koma öllu fólkinu út, enda gátum við ekkert bara hent því út og urðum því að leyfa því að bíða eftir leigubílum og svona.
Eftir að við komum öllum út var mér upp úr þurru boðið far niður í bæ. Það vantaði víst að fylla bílinn og var ég nærtækastur og þáði ég það að sjálfsögðu, og vil ég bara þakka Beggu kærlega fyrir að bjóða mér far með sér, Valdísi, Unu og einhverri vinkonu þeirra!

Ég í bílnum hennar Beggu. Með mér á myndinni er Una og einhver vinkona þeirra sem ég veit ekkert hvað heitir
Þegar við komum niður í bæ tókum við einn Laugarveg, en það var öllum svo mál að pissa þannig við skruppum út að pissa á meðan Begga keyrði ein niður Laugarveginn. Við áttum sko að ná henni á Laugarveginum en eftir að ég var búinn að pissa týndi ég þeim öllum. Ég rölti niður Laugarveginn í leit að bílnum hennar en fann hann ekki, þannig ég fékk ekki tækifæri til að hitta þær aftur og þakka þeim fyrir farið. En þær vita það allavega að ég stend í þakkarskuld við þær fyrir þetta.
Ég hitti margt fólk á leið minni niður Laugarveginn en sumt af því fólki mætti alveg drekka aðeins minna næst. En svo rölti ég bara á NASA, þar sem Gay Pride ballið var. Ég og Grétar vorum búnir að ákveða að fara á það og gerðum við það líka. Ég beið eftir að Grétar og Jónas kæmu niður í bæ, en Jónas greyið tímdi ekki að borga sig inn og villtist eitthvað.
Ég fór bara inn á NASA og hitti þar fólkið sem ég var að vinna með á Kringlukránni, þ.á.m. Betu, Gumma og Smára. Svo kom loks Grétar og við fórum trylltir á dansgólfið og dönsuðum úr okkur allt vit.

Það var pakkað á NASA!

Athugasemdir (