Einfarinn
Skrifað miðvikud. 30. nóvember 2005 - 01:43Hvað er málið með mig og að vilja bara vera einn? Auðvitað finnst mér gott að vera með vinunum en mér líður samt best einn. Ég er auðvitað að tala um daglega rúntinn sem ég tek alltaf á kvöldin.
En dagurinn í dag var ágætur. Ég vaknaði kl 11 og fór í skólann. Þegar ég kem upp í skólann sé ég á forfallatöflunni að landafræðikennarinn minn sé veikur þannig ég fer bara aftur heim. Svo mæti ég aftur kl 13:20 og svo fer ég heim.
Ég hef nú mest lítið að segja nema það að ég er bara búinn að hanga inni í tölvunni í allan dag, fyrir utan það þegar ég fór með Jökli á Nings. Núna iða ég alveg í skinninu eftir að fara á rúntinn. Skil ekki hvað mér finnst svona gaman við það. Það er aldrei neitt sem gerist. Ætli það sé ekki bara næðið og friðurinn sem róar mig.
Pabbi er í flugnámi og var að enda við að sýna mér úr kennslubókinni um að hávaði geti valdið andlegum og líkamlegum kvillum. Það var svo tekið dæmi í bókinni um þá sem eru í áhættuhópi og það voru auðvitað "töffararnir á rúntinum". Hehe, fyndið.
Prófin fara að byrja (nánar tiltekið 2. desember) og ætla ég gjörsamlega að loka mig inni og slökkva á tölvunni. En það virkar sjaldan þannig kannski maður skelli sér bara upp á Þjóðarbókhlöðu og taki því bara rólega þar.
Ég var að enda við að setja upp Windows XP SP1 og SP2 í dag og get ég ekki sagt að ég sé beint sáttur. Ég hélt að þessar uppfærslur væru til að laga, en ekki skemma. Ég hef allavega aldrei á ævi minni fengið jafn marga BSOD. Algjört rugl. Þannig ég tók bara út SP2 en hélt SP1 eftir inni. Tölvan er allavega ekki búin að crasha neitt núna í sirka 1-2 klst, sem er ekkert annað en gott.
Ég hef áður sett upp SP2 og lenti ég í sama veseninu og ég lenti í núna. Ég hélt það myndi breytast eitthvað en nei nei, sama vesenið. Hætta bara þessu Windows rugli og fara að nota Linux í allt.
En núna ætla ég aðeins að kíkja á lífið í bænum.
KoRn - See You On The Other Side (SYOTOS)
Nýi KoRn diskurinn See You On The Other Side kom út um daginn og smakkaði ég hann. Ég verð nú bara að segja að ég er að fíla þennan disk í botn. Ég spila ekkert annað þessa dagana í bílnum mínum. Hann var svolítið óvenjulegur fyrst en svo fór ég að hlusta á hann oftar og ég get ekki hætt að hlusta á hann núna. Ég er að fíla hann í botn!
Hann er alls ekkert frábrugðinn fyrri diskum en það þarf að hlusta á lögin nokkrum sinnum til að komast inn í þau. Ég gef þessum disk fjórar stjörnur af fimm mögulegum.
Uppáhalds lögin mín á disknum eru: Throw Me Away, Liar og Seen It All.
Hérna er lagalistinn:
1. Twisted Transistor
2. Politics
3. Hypocrites
4. Souvenir
5. 10 Or A 2-Way
6. Throw Me Away
7. Love Song
8. Open Up
9. Coming Undone
10. Getting Off
11. Liar
12. For No One
13. Seen It All
14. Tearjerker

Athugasemdir (