Sumarið á enda
Skrifað miðvikud. 15. ágúst 2007 - 01:46Það fer nú að styttast í að sumarið verði búið, þar sem skólinn fer að byrja eftir sirka viku, eða 22. ágúst. Síðasti dagurinn í vinnunni minni var í dag en ég mun taka eina aukavakt á laugardaginn næsta, þar sem það bráðvantaði.
En svo er Menningarnótt á laugardaginn og ætla ég að kíkja með strákunum niður í bæ um kvöldið. Ég er ekki einu sinni viss um hvort að ég muni drekka þá, þar sem ég vaknaði með þessa þvílíku hálsbólgu í morgun og finn að það er eitthvað kvef að byggjast upp. Spurning um að byrja aftur að taka lýsi og drekka C-vítamín?
En að lokum vil ég bara taka að ofan fyrir veðurguðinum, þar sem það er búið að vera fáránlega gott veður í sumar!

Athugasemdir (