Deila á Facebook
« Stolið lag hjá Stjórninni | Aðalsíða | Rush Hour 3 »

Opnunartími skemmtistaða
Skrifað fimmtud. 16. ágúst 2007 - 16:21
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Skv. þessari frétt hér er ofbeldi búið að færast í aukana niðri í miðbænum. Ég sé ekki að þau séu búin að færast í aukana, heldur eru fjölmiðlar bara búnir að blása þau meira út eftir að Eiður Smári var laminn niðri í bæ.

Eftir að Stefán Eiríksson, fyrrverandi skrifstofustjóri Kirkju- og dómsmálaráðuneytisins, tók við embætti lögreglustjóra hefur hann barist hart fyrir því að fá borgaryfirvöld til að stytta opnunartíma skemmtistaða um helgar, ásamt því að endurskoða úthlutun vínveitingaleyfa.

En hvað hefur hann upp úr þessu? Mun þetta minnka tíðni ofbeldis í miðbænum? Ég tel svo ekki vera, þar sem þetta verður einungis til þess að fólk sem ætlar sér að skemmta sér niðri í bæ byrjar að drekka fyrr og verður alveg jafn fullt - bara fyrr.

Þetta verður einnig til þess að fólk fer á svipuðum tíma niður í bæ, og því verður álagið mun meira. Biðtími leigubíla hækkar ennþá meira, raðir á skemmtistöðum verða lengri, ásamt því að öngþveiti verður meira. Og hvað hefst upp úr þessu öllu saman? Jú, meira ofbeldi.

Með þessum löngu opnunartímum er í raun ómeðvitað verið að dreifa álaginu og umferðinni niðri í bæ, þar sem fólk fer að jafnaði heim alveg frá kl 2 um nóttu. Sumir aðeins seinna, sumir aðeins fyrr - og því er þetta fínn opnunartími upp á álagsdreifingu að gera.




Athugasemdir ():