Rólegt föstudagskvöld
Skrifað laugard. 18. ágúst 2007 - 02:08Kvöldið er bara búið að vera mjög rólegt hjá mér, þar sem ég er bæði ennþá veikur og ég er að fara að vinna á morgun. Ég skutlaði Grétari niður í bæ áðan, en hann var gjörsamlega búinn á því, en samt vildi hann fara niður í bæ. Ég bauðst til að skutla honum heim en hann vildi bara fara niður í bæ. Hann svaf svo alla leiðina niður í bæ. Eftir að ég var búinn að skutla honum bað Annu vinkona mín frá Dalvík mig um að skutla sér og Önnu vinkonu sinni í búð að versla, en við tókum auðvitað smá rúnt í leiðinni. Svo var ég bara að koma heim núna og er að fara að sofa. Djamm á morgun! 
Athugasemdir (

