Menningarnótt
Skrifað mánud. 20. ágúst 2007 - 00:38Ég skrapp að sjálfsögðu í bæinn um kvöldið, en maður lætur sig varla vanta á svona árlegum stórhátíðum. Kvöldið var bara ágætt í alla staði, fyrir utan það að hafa lent í svolitlu rugli í endann, en samt sem áður fínt kvöld.
Um daginn fór ég bara að vinna í Húsasmiðjunni. Það var svo lítið að gera að það var ekki einu sinni fyndið, en þetta var allavega síðasti dagurinn minn þar.
Þegar ég kom heim gerði ég mér grein fyrir því að það væri menningarnótt um kvöldið og að ég yrði að gera eitthvað við hárið á mér. Ég byrjaði að tuða í systir minni um að setja strípur í mig en hún gat það ekki, þannig ég prófaði að hringja í Maju frænku og Karlottu, en Maja svaraði ekki og Karlotta var upptekin, þannig ég var alveg að verða ráðalaus, þangað til mér datt í hug að spyrja Gerði, sem er vinkona Karlottu og vann sem hárgreiðslukona í nokkur ár. Hún var svo góð að geta reddað mér, þannig ég var ekki HRÆÐILEGUR um hárið þetta kvöld.
Þetta heppnaðist nú bara mjög vel...

Ég vil bara þakka Gerði kærlega fyrir að redda mér svona á síðustu stundu.
Um kvöldið tók ég mig svo bara til fyrir djammið. Ég endaði í einu ljótasta combo sem til er, en það var grá skyrta og svartur jakki. Ég veit ekki hvað ég var að hugsa!
En ég byrjaði aðeins að sötra heima, en var kominn á annan bjór þegar mig langaði að drífa mig til Gumma. Ég hringdi þá í Grétar og spurði hann hvort einhver væri á bíl þarna, og var Halli edrú á bíl (WTF?), þannig Halli var svo góður að sækja mig. Takk fyrir það, Halli minn.
Þegar ég kom til Gumma voru þar: Gummi, Steini, Grétar, Andri, Halli, Jökull, Jói, Hilmar vinur Jóa og Lilja vinkona Gumma. Það var fínt þarna og spiluðum við m.a. Playstation leikinn Buzz, sem er skemmtilegur tónlistar-ágiskunar-leikur. Ég tók reyndar ekki þátt, en þeir sem tóku þátt voru: Gummi, Halli, Andri og Grétar, en Halli endaði með að sigra, og vann hann kjúkling í leiknum. Til hamingju með sigurinn, Halli!
Seinna um kvöldið þegar maður var kominn svolítið vel í glas ákváðum við að skella okkur í bæinn. Grétar hringdi þá í Elínu vinkonu sína og kom hún og sótti okkur. Hún skutlaði okkur bara á Sólon, en við fórum sko ekki á Sólon þetta kvöld... ó nei!
Ég og Grétar vorum búnir að ákveða að vera bara á röltinu úti, enda gerðum við það. Okkur fannst þetta bara verða eins og hver einasta helgi ef við myndum fara á Sólon, þannig við slepptum því og vorum bara á röltinu. Þegar okkur vantaði bjór fórum við bara inn á random staði og fengum okkur bjór.
Ég hitti þarna fyrir utan Sólon Andra, Steina og Gumma Krist, en ég og Gummi enduðum saman allt kvöldið. Svo hittum við Guggu og Önnu vinkonu hennar, sem voru seglar kvöldsins, og endaði það með því að við Gummi þurftum að stinga þær af, sem okkur líka tókst á endanum.
Ég hitti margt frábært fólk þarna um kvöldið, en við Gummi enduðum á Gauknum í lok kvöldsins. Þar hittum við stelpu, sem heitir Tinna og er frá Tálknafirði. Við buðum henni í eftirpartý til Sigga vin hans Gumma, en hún nennti ekki og fór bara heim með vinum sínum.
Við Gummi enduðum svo bara í eftirpartý hjá Sigga, en Elín vinkona Grétars var svo góð að skutla okkur. Takk, Elín.
Þegar við komum heim til Sigga varð ég allt í einu fáránlega slappur og hálf veikur, enda ekki alveg búinn að ná mér eftir öll veikindin yfir vikuna, þannig það var full snemmt að detta svona svakalega í það þarna um kvöldið. Tinna og systir hennar vildu svo allt í einu koma til okkar í eftirpartýið, og sendi Gummi leigubíl til þeirra sem hann borgaði svo fyrir. Slappi ég tók þá bara leigubílinn þeirra þegar þær komu. Ömurlegt að ég hafi ekki getað verið lengur með þeim, þar sem mig langaði það virkilega mikið.
Þegar ég kom heim fór ég bara strax upp í rúm að sofa, enda fáránlega slappur.
Svo vaknaði ég núna kl 8 í kvöld ógeðslega þunnur og ónýtur og fór bara beint í það að setja myndirnar inn frá kvöldinu. Ég var engan veginn nógu duglegur að taka myndir þarna í gær, en ég tók bara örfáar myndir. Alls ekki nógu gott!
Ég þarf samt að fara að sofa bráðlega, þar sem ég þarf að fara með bílinn minn í sprautun núna í fyrramálið. Svo er bara óráðið hvað ég geri.
En núna fer skólinn að byrja, þannig maður þarf að drífa sig í að kaupa bækur og svona. Svo er ég kominn aftur með vinnu á Kringlukránni, þannig ég verð að vinna þar bara aðra hverja helgi.
En ég ætla að segja þetta bara ágætt í bili, og vil ég bara þakka Gumma Jónss fyrir partýið í gær og öllum sem ég hitti í gær. Þetta var frábært kvöld.
Myndirnar sem ég tók svo þarna um kvöldið eru hér. Takk fyrir mig.

Very nice! How Much? ![]()

Athugasemdir (