Allt að gerast
Skrifað þriðjud. 21. ágúst 2007 - 21:10Já, það má sko með sanni segja að það sé allt að gerast. Skólinn byrjar aftur á morgun og byrja ég svo aftur að vinna á Kringlukránni núna næstu helgi.
Ég fór í dag og ræddi við Sophus varðandi vinnu og fékk ég hana. Ég verð að vinna aðra hverja helgi frá 17-04 en ég byrja kl 22 núna næstu helgi. Ég hlakka svo til að hitta allt liðið aftur, enda ekkert nema frábært fólk þarna á ferð! Þetta er líka komið ágætt af djammi, en maður er búinn að djamma hverja einustu helgi í sumar.
En núna síðast liðnu daga er ég bara búinn að vera að drepast úr flensu og ógeði, en ég er núna aðeins byrjaður að ná mér úr þessu.
Ég er sem sagt núna bara að skipuleggja skólann, bókakaup ofl., þar sem þetta skellur á, á morgun. Ég geri nú ekki ráð fyrir því að það verði einhver svaka kennsla á morgun, þar sem það eiga eflaust 60% eftir að kaupa bækur - þ.á.m. ég!
Svo er ég bíllaus núna í augnablikinu, þar sem ég lenti í smá óhappi um daginn, þannig bíllinn er núna í sprautun hjá snillingunum í Víkur Ós. Ég vonast samt til að fá hann fljótlega, þar sem ég get ekki verið bíllaus nú þegar skólinn er byrjaður - eða hvað?
Það er nefnilega frítt í strætó núna í vetur fyrir námsmenn, og eru borgaryfirvöld í samráði við skólastjórnendur að íhuga að rukka fyrir notkun á bílastæðum í skólum á meðan þetta tilboð er í gangi. Þannig það er spurning hvort maður leggi bílnum og byrji bara að taka strætó? Það er aldrei að vita.
En annars er ég bara ágætur á því, kvíðir reyndar svolítið fyrir að byrja aftur í skólanum aftur, þar sem ég þekki svo afskaplega fáa þarna. Allir sem ég þekkti þarna eru annað hvort hættir eða útskrifaðir.
Það er gaman að þessu...

Athugasemdir (