Deila á Facebook
« Kaupþings tónleikarnir | Aðalsíða | Ótímabærar barneignir? »

Smápíkur
Skrifað fimmtud. 23. ágúst 2007 - 00:35
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Hvað er smápíka? Jú, það er ung táningsstúlka á gelgjunni sem málar sig yfirgengilega mikið. Hér eru drepfyndnar leiðbeiningar um það hvað smápíkur þurfa að ganga í gegnum.

Höfundur: ArnarFB

Til að sprengja bólur, settu sprengioddinn á bóluna og lemdu fast með hamri. Gott er að fá aðstoð annarra við þetta verk og vertu með lokuð augun til að forðast ofsahræðslu.


Eftir að bólan hefur verið sprengd er oft heljarinnar hola eða jafnvel gljúfur í smettinu á þér. Best er að þrífa holuna með terpentínubleyttum svamp sem fæst á næstu bensínstöð.


Nú skaltu taka upp Smettisfix 5000 sparslið og bera um 100 til 200 grömm (2-3 slettur) á andlitið á þér og bera jafnt út með spaðanum sem fylgir með.


Þegar gera þarf við andlitsbrúnir, svo sem nef eða varir, þá þarf að nota spýtubút til að passa upp á að beinar línur myndist. Berið sparslið á, skrapa óþarfa magn af (eins og hvenær er það of mikið pff) og látið þorna. Pússa svo grófar línur í burtu með 100 sandpappír og mýkja niður með 800 pappír.


Passið bara að ýta ekki of fast með spaðanum og ekki nota skemmdan spaða eða spaða með sparslleyfum á. Það myndast bara línur í sparslhúðina framan í ykkur og þið virkið hundgamlar.





Athugasemdir ():