Deila á Facebook
« Samræmd stúdentspróf | Aðalsíða | 12 ára drengjasópran »

Það er eitthvað að mér!
Skrifað miðvikud. 30. nóvember 2005 - 22:21
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég vildi óska þess að venjulega þegar ég kæmi heim úr skólanum, væri ég píndur til að læra. Það myndi allavega hjálpa upp á letina í mér.

Ég kom heim úr skólanum í dag og settist strax fyrir framan tölvuna. Fyrsta prófið er núna á föstudaginn og er það Félagsfræðin. Ég er að vinna á morgun, föstudaginn og alla helgina þannig ég held ég verði bara að taka næturhrafninn á þetta. Þ.e.a.s. vaka alla fimmtudagsnóttina og læra fyrir prófið. Nema ég nái að redda mér fríi í vinnunni á morgun.

Svo næsta próf á eftir Félagsfræðinni er á þriðjudaginn, þannig ég fæ smá tíma um helgina (þegar ég er ekki að vinna) og mánudaginn til að læra fyrir það. Og það er auðvitað án efa "skemmtilegasta" prófið; landafræðin. Vá hvað það verður gaman að læra fyrir það. Lesa 300 bls bók og skilja allt. Ég hlakka til!

Ég skil ekki hvað er að hindra mig í að opna bækur núna. Það myndi auðvelda rosalega fyrir. Ég skil ekki hvað er í gangi með mig. Það er eitthvað ekki í lagi hjá mér. Ég er svo óeðlilega latur að ég held það sé hættulegt. Ég þarf að fá eitthvað spark í rassgatið. Á næstu önn var ég að spá í að stofna svona lærdómsklúbb, þar sem ég býð einhverjum vitleysingum í og svo lærum við saman allt sem við þurfum að læra. Ekki vitlaus hugmynd. Þetta yrði ágætt spark í rassgatið! Félagsskapur á meðan maður er að læra. Ég held það muni virka fyrir mig.

Núna er ég bara að taka því rólega hér heima og var að enda við að gæða mér á ljúffengri Chicago Town Pizzu. Ég er orðinn óeðlilega háður Jólaöli að það er bara rugl. Ég drakk alltaf rauðan Kristal Plús en núna er ég sko kominn í annan pakka. Alltaf þarf ég að finna mér eitthvað sem ég verð háður af. Ég er strax búinn með 8 dósir af þessu á 2 dögum. Díses!

Ég var einnig að flokka MSN contactana mína, setja þá í flokka og endurskíra þá og svona. Rosa gaman, eða þannig. Mér sýnist allt benda til þess að ég snúi aftur í MSN Messenger. Ég er ekki alveg að fíla þetta Gaim lengur. Þetta var fínt fyrst en núna er þetta bara svo dautt eitthvað. Núna er ég að prófa eitthvað Trillian sem á víst að vera eitthvað rosa gott.

Ég er að spá í að kíkja í smá ísbíltúr, fá mér bragðaref. Nammm! Ég fæ bara vatn í munninn! Heyrumst, elskurnar.




Athugasemdir ():