Helgin 21. - 23. september
Skrifað mánud. 24. september 2007 - 03:04Ég var nú bara að vinna alla helgina, en þar sem ég var að skipta um helgar í vinnunni og er þ.a.l. að vinna næstu helgi, vann ég bara stuttar vaktir núna um helgina eða frá 5-9.
Á föstudaginn var ég bara að vinna. Ég og Davíð vorum bara tveir á barnum um kvöldið, heví fínt að vinna með honum.
Það var samt heví mikið að gera í vinnunni, en það var nú bara út af þessari Laddasýningu. Ákvað svo bara að taka það rólega þetta kvöld þannig ég fór bara heim eftir vinnu og sofnaði strax og ég kom heim.
Á laugardaginn var ég líka að vinna frá 5-9, en eftir vinnu skellti ég mér á Caruso með Kráarfólkinu; Betu, Gumma, Óla og Robba. Það var mjög fínt og fékk ég mér risarækjurisotto löðrandi í hvítlauksolíu, mmm fáránlega gott og bara skemmtilegt að hitta liðið aftur!
Eftir matinn skellti ég mér bara heim í sturtu og gerði mig fínan. Grétar kom svo stuttu seinna og drukkum við bara og horfðum á sjónvarpið.
Seinna um kvöldið þegar okkur vantaði að komast niður í bæ hringdi ég í Kollu frænku og bað hana um að skutla okkur Grétari. Hún var meira en til í það. Hún og Auður vinkona hennar komu svo stuttu seinna og skutluðu okkur á Sólon. Takk fyrir það, elskan.
En þetta kvöld var nú bara ágætt, við stoppuðum voða stutt á Sólon en við kíktum seinna á Ingvar á Organ, þar sem hann hellti okkur fulla af áfengi og dönsuðum svo við músíkina þar, en það var eitthvað techno-reif í gangi þarna.

Eftir að Organ lokaði ákváðum við að halda áfram að djamma og hittum Betu og Evu fyrir utan Amsterdam, þar sem ég átti í erfiðleikum með að komast inn. Bæði Beta og Robbi hjálpuðu mér að komast inn þannig ég vil bara þakka þeim kærlega fyrir það.
Þegar inn á Amsterdam var komið hitti ég Pétur, sem lamdi mig í Iðnskólanum forðum. Grétar ætlaði að vaða í hann en ég bað hann um að sleppa því. Svo endaði það með því að við Pétur fórum í sjómann og var jafntefli á milli okkar (þó hann hafi gefist upp), en hann gjörsamlega rústaði mér fyrir nokkrum árum. En svo eftir þetta endaði ég í sjómann við einhverja tvo aðra. Einn gaur sá sjómanninn á milli mín og Péturs og bað mig um að fara í sjómann við félaga sinn, og sagði félagi hans að það væri ekki séns að ég myndi taka hann, en ég tók hann nú. Svo var einhver gaur sem var voða svalur eftir það og sagðist geta tekið mig, en ég tók hann líka. Hehehe, bara gaman að þessu.
Eftir allt þetta rugl spjallaði ég við Pétur og spurði hann hvort hann sæji eftir þessu sem hann gerði við mig í Iðnskólanum, og sagði hann að hann sæji eftir þessu persónulega, en ekki fagmannlega, þar sem hann lamdi mig fyrir einhvern sem bað hann um að lemja mig. Gaman að því, en ég er sáttur með að ég og Pétur séum sáttir, þar sem ég nenni ekki að standa í einhverjum leiðindum við einn eða neinn.
Eftir að Amsterdam lokaði röltum við Grétar upp að Sólon þar sem við hittum Alexíu, en það endaði með eftirpartý heima hjá mér. Maður var svo drukkinn og þreyttur að maður fór bara fljótlega að sofa eftir að maður kom heim, en ég vil bara þakka Grétari og Alexíu kærlega fyrir morgundjammið. Svo vil ég bara þakka öllum fyrir frábært djamm, og þá helst Grétari. Maður gæti ekki hugsað sér betri vin!

En svo á sunnudaginn vaknaði ég ógeðslega þunnur og ógeðslegur. Síðan þá er ég bara búinn að liggja í leti heima, hef ekki orku í að gera nokkurn skapaðan hlut.
En allavega, segjum þetta ágætt í bili.
Á föstudaginn var ég bara að vinna. Ég og Davíð vorum bara tveir á barnum um kvöldið, heví fínt að vinna með honum.
Á laugardaginn var ég líka að vinna frá 5-9, en eftir vinnu skellti ég mér á Caruso með Kráarfólkinu; Betu, Gumma, Óla og Robba. Það var mjög fínt og fékk ég mér risarækjurisotto löðrandi í hvítlauksolíu, mmm fáránlega gott og bara skemmtilegt að hitta liðið aftur!
Eftir matinn skellti ég mér bara heim í sturtu og gerði mig fínan. Grétar kom svo stuttu seinna og drukkum við bara og horfðum á sjónvarpið.
Seinna um kvöldið þegar okkur vantaði að komast niður í bæ hringdi ég í Kollu frænku og bað hana um að skutla okkur Grétari. Hún var meira en til í það. Hún og Auður vinkona hennar komu svo stuttu seinna og skutluðu okkur á Sólon. Takk fyrir það, elskan.
En þetta kvöld var nú bara ágætt, við stoppuðum voða stutt á Sólon en við kíktum seinna á Ingvar á Organ, þar sem hann hellti okkur fulla af áfengi og dönsuðum svo við músíkina þar, en það var eitthvað techno-reif í gangi þarna.

Frekar fyndin mynd af mér og Grétari þar sem ég er að rífast við einhvern þegar Karlotta ákvað að taka myndina. Grétar alveg tilbúinn fyrir myndatöku ![]()
Eftir að Organ lokaði ákváðum við að halda áfram að djamma og hittum Betu og Evu fyrir utan Amsterdam, þar sem ég átti í erfiðleikum með að komast inn. Bæði Beta og Robbi hjálpuðu mér að komast inn þannig ég vil bara þakka þeim kærlega fyrir það.
Þegar inn á Amsterdam var komið hitti ég Pétur, sem lamdi mig í Iðnskólanum forðum. Grétar ætlaði að vaða í hann en ég bað hann um að sleppa því. Svo endaði það með því að við Pétur fórum í sjómann og var jafntefli á milli okkar (þó hann hafi gefist upp), en hann gjörsamlega rústaði mér fyrir nokkrum árum. En svo eftir þetta endaði ég í sjómann við einhverja tvo aðra. Einn gaur sá sjómanninn á milli mín og Péturs og bað mig um að fara í sjómann við félaga sinn, og sagði félagi hans að það væri ekki séns að ég myndi taka hann, en ég tók hann nú. Svo var einhver gaur sem var voða svalur eftir það og sagðist geta tekið mig, en ég tók hann líka. Hehehe, bara gaman að þessu.
Eftir allt þetta rugl spjallaði ég við Pétur og spurði hann hvort hann sæji eftir þessu sem hann gerði við mig í Iðnskólanum, og sagði hann að hann sæji eftir þessu persónulega, en ekki fagmannlega, þar sem hann lamdi mig fyrir einhvern sem bað hann um að lemja mig. Gaman að því, en ég er sáttur með að ég og Pétur séum sáttir, þar sem ég nenni ekki að standa í einhverjum leiðindum við einn eða neinn.
Eftir að Amsterdam lokaði röltum við Grétar upp að Sólon þar sem við hittum Alexíu, en það endaði með eftirpartý heima hjá mér. Maður var svo drukkinn og þreyttur að maður fór bara fljótlega að sofa eftir að maður kom heim, en ég vil bara þakka Grétari og Alexíu kærlega fyrir morgundjammið. Svo vil ég bara þakka öllum fyrir frábært djamm, og þá helst Grétari. Maður gæti ekki hugsað sér betri vin!

Ég góður á því með glas í hönd. Þá líður mér best! ![]()

Athugasemdir (