Deila á Facebook
« Löng og erfið helgi framundan | Aðalsíða | Dagurinn í gær »

Smá pælingar
Skrifað föstud. 21. október 2005 - 08:44
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Núna í gær kl sirka 2 um nótt, um leið og ég var að sofna, hringdi Hulda í mig. En málið er það að hún ætlaði ekkert að hringja í mig. Hún hefur greinilega bara rekist í takka og hringt óvart í mig.

Ég svaraði í símann og sagði "Halló". Svo kom ekkert svar þannig ég kallaði nokkrum sinnum "Halló? Halló?" en ekkert svar. Þannig ég lagði á hlustir og heyrði í henni tala við einhvern gaur. Ég var ekkert að hlera, ég var bara að athuga hvort hún hefði hringt óvart í mig.

En því sem ég fór að spá í var það að ef hún hringdi í mig, þá er hún greinilega ekki búin að eyða mér út úr símaskránni. Ég efast um að maður rekist í nokkra takka og fari inn í símaskránna og hringi í Gaua. Þannig hún hlýtur að vera með mig á "speed dial" eða eitthvað.

Ómerkilegar pælingar en ég varð bara að deila þeim.

En já, vinna í kvöld til 12 um miðnætti og svo pöbbarölt. Ég er búinn að festa stefnumót með vinkonum mínum og vinum, þannig það verður tekið hart á því í kvöld. Reynt að gleyma þessu Huldu skvísu. Ég vona bara innilega að ég rekist ekki á hana í kvöld.

Eins og þið sjáið, þá sl. mánuð frá því að við hættum saman, hefur fátt annað en hún verið í huga mér. En svona er að vera ástfanginn upp fyrir haus.
Ég reyni að lifa einn dag í einu og hætta að hugsa um hana þar sem það er greinilegt að hún vill ekkert með mig hafa. Og ætti ég eitthvað að vilja með hana hafa eftir að hún stakk mig af á Glaumbar og lét mig ekki einu sinni vita?

En já, ég segi þetta gott í bili. Gott að geta létt á sér svona.




Athugasemdir ():