Helgin 28. - 30. september
Skrifað mánud. 1. október 2007 - 04:08Þá er enn önnur helgin búin og tekur enn önnur skólavikan við.
Á föstudaginn var ég bara að vinna en það var að sjálfsögðu allt brjálað út af þessari margblessuðu Laddasýningu.
Ég var bara úti í sal að þjóna bæði um kvöldið og nóttina, ekki á barnum eins og venjulega. En það var svo langt síðan maður var úti í sal að þjóna þannig einn kúnninn fékk ekki súpuna sem hann hafði pantað í forrétt.
Maður reynir náttúrulega sitt besta við að komast slysalaust í gegnum svona tarnir en það getur verið erfitt þegar maður er undir fullu álagi og þarf að leggja á minnið hvert einasta smáatriði þar sem það er enginn tími til að skrifa hluti niður. En þrátt fyrir þetta gekk kvöldið bara ágætlega.
Um nóttina komu Grétar og Ingvar og heilsuðu upp á mig. Svo komu Helgi, Andri, Ómar og Elín kærastan hans Helga. Þau stoppuðu öll voða stutt þar sem þau voru á leiðinni niður í bæ, en takk samt fyrir innlitið, gaman að fá ykkur.
Eftir vinnu þegar við vorum búin að taka til skellti ég mér aðeins á rúntinn niðri í bæ. Ég hitti Steina og Gaua bro en þeir voru á leiðinni á Glaumbar. Svo hitti ég Helga og skutlaði honum heim til Elínar. Eftir það hitti ég Ingvar og Ómar, en þeir sögðu mér þá að Grétar hefði verið handtekinn, og spurði ég að sjálfsögðu fyrir hvað, og þá sögðu þeir að hann hefði verið handtekinn fyrir að henda plastflösku á götuna.
Mér finnst alveg út úr kú hvernig vinnubrögð lögreglunnar eru orðin nú í dag. Ekki það að mér finnist í lagi að henda rusli á göturnar eða neitt slíkt, en þá er algjör óþarfi að taka á þessu „svakalega“ lögbroti á háannatíma lögreglunnar, einmitt þegar allir skemmtistaðir eru að loka. Ef lögreglunni finnst þetta málefni vera mikilvægara en að vakta miðbæinn þá verð ég nú bara að segja að þeir kunni ekki að forgangsraða eða þá að það sé ekki eins mikill erill hjá þeim eins og þeir vilja halda fram.
Og eruði að segja mér að lögreglan ætli að eyða tíma í að taka hvern einn og einasta einstakling sem hendir rusli á göturnar, færa þá niður á stöð og sekta þá um 10.000 kr. - eins og gert var við Grétar? Ég verð nú bara að segja að það sé hrein og bein heimska, þar sem annar hver maður hendir rusli á göturnar þegar hann er undir áhrifum áfengis. Og þá eru sígarettustubbar að sjálfsögðu meðtaldir!
En eftir þetta drama allt saman beið ég bara eftir Grétari fyrir utan lögreglustöðina niðri í bæ og skutlaði svo honum og Ingvari heim. Ómar ákvað að taka leigubíl með einhverri stelpu sem hann kynntist þarna um kvöldið, en ég henti henni út fyrir Grétar.
Á laugardaginn vaknaði ég ógeðslega seint og fór bara beint í vinnuna. Það var mun meira að gera þarna um kvöldið en á föstudeginum, en ég var betur skipulagður þannig kvöldið gekk eins og í sögu. Svo um nóttina var ég bara á barnum með Davíði. Frábær strákur og bara gaman að vinna með honum!
Eftir vinnu ákvað ég að hrynja í það. Ég fékk mér nokkra bjóra uppi í vinnu og hringdi svo í Grétar og bað hann um að sækja mig. Hann kom og við skelltum okkur á Sólon til lokunar. Svo eftir að það lokaði fórum við Grétar bara heim til mín og héldum áfram að djamma, og kíkti Jökull yfir til okkar. Frábært kvöld alveg, og vil ég bara þakka Gumma kærlega fyrir drykkina á Sólon.

Svo á sunnudaginn vaknaði ég ógeðslega þunnur og handónýtur við það að Grétar hringdi í mig. Hann skutlaði mér svo að sækja bílinn minn í Kringluna og svo fengum við okkur bara að borða á American Style.
En svona í heildina var þetta ágætis vinnuhelgi, en ég er náttúrulega í fríi næstu helgi þannig það verður ábyggilega djamm þá.
Og hjúkket að ég er búinn að læra ógeðslega mikið fyrir morgundaginn!

Mynd sem Karlotta smellti af mér og Grétari með ofurgóðu myndavélinni sinni ![]()

Athugasemdir (