Deila á Facebook
« Klámmyndbönd út um allt? | Aðalsíða | Föstudagur - afmæli »

Grímuball?
Skrifað föstud. 5. október 2007 - 15:36
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég er víst að fara í afmæli hjá Erlu, Helgu og Kollu núna í kvöld. Ég hlakka alveg til fyrir utan eitt.

Það er 60's þema og þýðir það að maður verður að mæta eins og hálfviti! Það þýðir líka það að maður getur búist við því að vera neitað um inngöngu inn á staði niðri í bæ - þökk sé dress code, og líka þar sem það er enginn heilvita maður sem klæðist svona í dag!

Mér finnst allt í lagi að hafa látlaust þema, þar sem maður mætir í einhverju sem er sérstakt á litinn (eins og með hvíta þemaið í afmælinu hjá Gumma), hattaþema, o.s.frv., en það er of langt gengið að stjórna því í hvernig fötum maður er, þar sem það er ekki beint hlaupið í það að skipta um föt!

Vá hvað við erum fín! NEEEEEEEEEEEEiiiii!


Þetta minnir mann á grímuball.




Athugasemdir ():