Föstudagur - afmæli
Skrifað laugard. 6. október 2007 - 22:11Ég kíkti í gær í afmælið til Erlu, Helgu og Kollu á Tropical (gamla Klúbbnum). Ég mætti ekki í 60's fötum enda voru eiginlega bara afmælisbörnin í svoleiðis fötum. Sem betur fer mætti maður ekki eins og hálfviti. 
Ég, Grétar og Ingvar fengum far hjá Ellu systir á Tropical, en það var nánast enginn mættur þegar við komum þannig við settumst bara niður með drykk í hönd og slöppuðum af.
Um kvöldið ákvað ég að gefa afmælisbarninu Erlu afmælisgjöfina sína á barnum og bauð henni upp á Sex on the Beach, sem er mjög fínn kokteill á barnum. Stelpan á barnum reyndi að svindla á mér með því að reyna að selja mér screwdriver (vodka + appelsínusafi) blandaðan úr könnu og sagði þetta vera tilbúinn Sex on the Beach úr könnu, en ég sagði henni að hætta að reyna að svindla á mér þar sem ég væri sjálfur að vinna sem barþjónn.
Hún lét þá einhverja aðra stelpu sem vann þarna á barnum tala við mig og reyndi hún líka að selja mér sama tilbúna jukkið sem Sex on the Beach. Ég fékk alveg nóg og bað um að fá að tala við einhvern sem réði þarna.
Seinna kom eigandinn og bað ég hann um að smakka það sem þær hefðu reynt að selja mér sem Sex on the Beach og bað ég hann svo um að segja mér hvað honum finndist þetta vera. Hann sagði þá að þetta væri bara vodki í appelsínusafa - eins og ég hafði alltaf haldið fram! Svo á endanum blandaði hann ekta Sex on the Beach fyrir mig og gaf mér, og afsakaði mjög vinnubrögð stúlknanna.
Sniðugt að reyna að plata kúnna svona bara út af því að þær kunnu ekki að búa til Sex on the Beach. Þetta fór frekar í mig.
En allavega, kvöldið var ágætt. Það kom reyndar voða mikið af Live2Cruize liði, enda er Helga, eitt afmælisbarnið, í bílaklúbbnum og því voru svona margir krúsarar þarna.
Ég lenti í smá veseni þarna en það var bara út af því að félagi minn var með bögg og reyndi að ráðast á dyravörðinn þarna, en ég hélt honum bara þangað til hann drapst í fanginu á mér. Ekkert alvarlegt.
Eftir þetta ákváðum við bara að fara niður í bæ og var Ómar svo góður að skutla okkur. Takk, Ómar.
Ég var á tímabili að spá í að fara bara heim en ákvað að fara niður í bæ þar sem ég var búinn að lofa Ásu vinkonu minni að hitta hana.
Við fórum á Hressó og hittum Svenna þar fyrir utan. Það fyndna var að Ingvar og Svenni voru bara spurðir um skilríki en dyraverðinum fannst við Grétar líta eldri út, hahaha.
Svo hittum við Svenni Ásu en Grétar og Ingvar fóru á einhvern annan stað. Við dönsuðum þvílíkt og höfðum rosalega gaman þangað til Svenni hvarf og var svo allt í einu kominn á Prikið þegar maður heyrði í honum seinna um kvöldið.
Þetta var ágætis kvöld, en það endaði bara með því að ég, Ása, Grétar og Gugga tókum bara leigubíl heim saman.
En svona í lokin langaði mig bara að kasta kveðju á Davíð Örn. Ég hitti hann í gær á Tropical og sagðist hann lesa alltaf bloggið mitt og bað hann mig um að nefna sig í þessari færslu þannig hérna er smá kveðja til hans.
En núna ætla ég að kíkja í afmæli til Ægis, sem var 22. ára síðasta miðvikudag (3. október).

Athugasemdir (