Restin af helginni - annað afmæli
Skrifað mánud. 8. október 2007 - 21:53Laugardagskvöldið var nú bara helvíti fínt en það sem stóð upp úr var það að djamma með strákunum, og þ.á.m. Palla sem flutti út til Danmerkur í skóla.
Við byrjuðum í afmæli hjá Ægi, en okkur var eiginlega ekki boðið til að byrja með þannig ég var með svolítið samviskubit yfir því að hafa mætt þegar ákveðnir aðilar byrjuðu að haga sér eins og í grunnskóla. Það mætti stundum halda að við værum ekki 22 ára gamlir.
Leiðinlegt bara þegar þeim sem var boðið til að byrja með höguðu sér eins og fullorðnir en ekki hinir. En nóg um það!
Eftir afmælið ákváðum við að fara niður í bæ og var Kolla frænka svo góð að skutla mér. Takk, Kolla mín.
Leiðinlegt samt að Grétar, Jökull og Halli ákváðu að sleppa því að fara í bæinn, en það var ýmist vegna ofurölvunar, hundasýningar eða almennum letingjaskap.
Eftir að ég kom niður í bæ hitti ég strákana í röðinni á Sólon. Dyravörðurinn var mjög duglegur við að spyrja alla um skilríki þannig það komst enginn undir lögaldri fram hjá honum, fyrir utan að sjálfsögðu allar ungu stelpurnar sem fóru inn í gegnum VIP röðina.
En inni hittum við Gumma og var hann duglegur að splæsa á okkur Tequila skotum, en það gæti verið ástæðan fyrir því af hverju ég man minna frá kvöldinu en venjulega.
Takk, Gummi minn. 
Við röltum svo á milli staða en við hittum Helga og Jóa, sem voru reyndar líka í afmælinu hjá Ægi. Eftir smá rölt týndum við þeim, en mér leikur illur grunur um að þeir hafi bara farið á Hverfis, þar sem það er víst uppáhalds staðurinn þeirra.
Við reyndum að komast inn á B5, en það er víst 23 ára aldurstakmark þar. Hehehe, þetta er alltaf svona, maður alveg að verða tvítugur og hlakkar geðveikt til að komast inn á skemmtistaði en svo kemst maður ekki inn út af því að það er 22 ára aldurstakmark, en svo þegar maður verður loks 22 er 23 ára inn.
Þetta endaði svo með því að við röltum á milli nokkurra staða án þess að setjast niður til að fá okkur að drekka, þangað til við komum aftur á Sólon. Þá tók bara major dans session við, en ég, Gummi, Gaui bro, Jón, Rafn, Ómar, Andri, ofl. vorum duglegir á dansgólfinu. Bara gaman!
En eftir að Sólon lokaði skelltum við Gaui bro og Jón okkur bara á Hlöllavagninn og fengum okkur að borða. Jón hitti einhverjar stelpur sem hann bauðst til að skutla heim, þannig hann skrapp og á meðan biðum við. Svo eftir allnokkrar mínútur kom hann aftur og náði í okkur, en þá var ein stelpan með honum.
Ég man bara að á leiðinni vorum við Gaui bro með þvílík leiðindi við hana út af því hversu ung hún var og eitthvað. Hehe það var fyndið þá en svolítið kjánalegt núna. Gaui bro reyndi að biðja hana afsökunar og fór m.a.s. fram í til hennar þegar við skutluðum honum heim, en hún horfði bara í hina áttina á meðan hann var að reyna að biðja hana afsökunar. Við vorum líka búnir að fara frekar illa með greyið.
En ef þessi tiltekna stelpa les þetta þá biðjumst við Gauarnir báðir innilegrar afsökunar á þessu. Mjög svo óþroskað af okkur.
En eftir þetta allt saman skutlaði Jón henni bara heim og svo mér. Djöfull var gott að komast heim. En ég vil bara þakka Jóni og Gaua bro kærlega fyrir að hafa verið með mér til lokunar, og svo vil ég þakka Jóni kærlega fyrir að skutla mér heim.
Það var nú ekki mikið gert á sunnudaginn annað en bara legið í þynnku mest allan daginn, en svo skrapp ég í bíó með Gumma á myndina Halloween, en það leiðinlega var að Palli ætlaði með en hann var ekki með síma á sér þannig við náðum ekki í hann og fundum hann þ.a.l. ekki.
En núna er ég bara að reyna að klára þessa blessuðu 4 bls ritgerð um Hengilsvæðið, sem ég á að skila fyrir miðnætti. Það gengur svona upp og ofan, en ég verð þá bara að klára það á morgun ef ég næ því ekki í kvöld. Ég var settur í hóp með strák sem er hvorki með netið né á tölvu, þannig hann getur ekkert gert. Hjúkket!

Athugasemdir (