Greinilega ekki Sólon!
Skrifað föstud. 12. október 2007 - 12:28Í gær var ég búinn að ákveða að fá mér bjór þarna um kvöldið, og ætlaði ég að kíkja á Sólon. Gummi var á leiðinni með vinkonu sinni þangað þannig við Jökull ætluðum að hitta hann þar.
Ég skrapp í dans, fór svo á American Style og fékk mér að borða, fór svo heim og tók mig til og hringdi svo í Jökul og sagði að ég væri tilbúinn.
Svo horfði ég á Tekinn 2 og Næturvaktina en ekkert bólaði á Jökli, en klukkan var allt í einu orðin 00:10, þannig það voru 50 mínútur sirka þangað til Sólon lokaði, þannig ég sá ekki fram á það að við værum mikið að fara á Sólon.
Ég bað pabba um að skutla mér á Sólon til Gumma en hann nennti ekki að keyra svo langt, þannig ég ákvað þá bara að kíkja einn á Tropical (gamla Klúbbinn). Ég bara varð að fá bjór!
Þegar ég kom á Tropical var fáránlega mikil hrúga af fólki við inngönguhliðið, mest allt einhverjir krakkar sem voru að koma af einhverjum menntaskólaböllum. Ég stóð þarna heillengi en það voru alltaf einhverjar litlar smástelpur sem löbbuðu fram fyrir mig. Ég nennti ekki að vera með vesen, þar sem ég var einn þarna og enginn til að hjálpa mér ef ég myndi nú óvart yrða á kærustu einhvers brjálæðings.
Ég var búinn að missa alla von, m.a.s. Binni, sem ég þekki sem er að vinna þarna, sagði að hann gæti ekki reddað mér inn og að ég yrði bara að bíða. Það var ógeðslega kalt og ég færðist alltaf aftar og aftar í hrúgunni - bara út af frekjunni í þessum krökkum.
Dyravörðurinn sagðist ekki hleypa neinum inn fyrr en allir myndu bakka frá hliðinu, en það bakkaði aldrei neinn. Fólk byrjaði bara að ýta meira ef eitthvað var.
Ég var gjörsamlega búinn að missa alla von þangað til ég hitti á einn dyravörðinn, mjög næs eldri kall, og sagði ég honum bara að það væri engin von að bíða í svona óskipulagðri hrúgu, þar sem fólk tróð sér bara í hrúguna og endaði það með því að maður færðist alltaf aftar og aftar í hrúgunni.
Hann dró mig þá bara með sér í gegnum hrúguna og hleypti mér inn í VIP. Ég var mjög sáttur við þetta, þar sem ég var búinn að bíða í sirka hálftíma þarna í þessari brjáluðu hrúgu.
En allavega, ég komst inn og gat fengið mér langþráðan bjór! Ég þekkti engan þarna þannig ég settist bara einhverstaðar í hornið og lét lítið fara fyrir mér, þangað til Guðný, systir Betu fyrrverandi hans Jökuls, kom og settist hjá mér og byrjaði að spjalla við mig. Það var mjög fínt að spjalla við hana, þar sem ég þekkti gjörsamlega engan þarna nema hana.
Svo seinna um kvöldið komu Ása, Jenný og Hrefna. Þegar það lokaði á Tropical bað ég Hrefnu um að skutla mér heim, þar sem ég á heima rétt hjá, og var hún alveg til í það.

Þegar ég kom heim fékk ég mér annan bjór og settist aðeins í tölvuna. Seinna sendi vinkona mín mér sms og bað mig um að koma til sín, en ég vissi nú ekki hvernig ég ætti að komast, þar sem ég var búinn að drekka en ég ákvað nú samt að fara.
Ég tók þá leigubíl en eftir smá keyrslu í leigubílnum hitti ég Viktor á rauðu ljósi, frábæran strák sem er með mér í bílaklúbbnum Live2Cruize, og spurði hvert hann væri að fara. Hann var á leiðinni í Kópavoginn þannig ég bað hann um að skutla mér til vinkonu minnar, og var hann meira en til í það.
Ég borgaði þá bara 900 kr. fyrir leigubílinn og fór yfir í Viktors bíl, og skutlaði hann mér. Takk kærlega fyrir þetta, Viktor, gerðir mér feitan greiða með þessu!
En núna er ég að spá í leggja mig aðeins þangað til ég fer að vinna á eftir og í alla nótt. Úff, löng helgi framundan. En allavega, segjum þetta ágætt í bili.

Hrefna, Jenný, Ása og ég á Tropical í gærkvöldi

Athugasemdir (