Föstudagur - búinn snemma
Skrifað laugard. 13. október 2007 - 16:03Ég fór nú bara að vinna í gær kl 5. Það var ekkert að gera, en það var örugglega út af því að það var engin Laddasýning og út af því að Sixties voru að spila á Players.
Um nóttina var ekkert að gera heldur, þannig Beta vaktstjóri leyfði mér að fara klukkan 2. Ég ákvað þá bara, þar sem ég var búinn svona snemma, að kíkja aðeins í bæinn. Skemmtilegt hvernig það endaði.
Ég dreif mig heim og skipti um föt. Byrjaði að sötra smá bjór á meðan ég var að taka mig til og reyndi að redda mér fari niður í bæ. Það vildi svo heppilega til að vinkona mín, Kristjana, var á MSN og var meira en til í að skutla mér. Ég lagði svo bara inn á hana 1000 kr. fyrir bensíni og hún kom og sótti mig. Takk, Kristjana mín.
Eftir að ég kom niður í bæ skellti ég mér strax á Sólon. Það var líka ekkert að gera þar, en ætli það sé ekki út af því að Dirty South var að spila á Broadway í gær. Ása var að minnsta kosti þar.
Ég skellti mér bara upp á barinn til Gumma þar sem hann hellti mig blindfullan og dansaði ég svo við Svenna og Alexíu.
Eftir að Sólon lokaði skutlaði Gummi mér bara heim, en við komum við á Subway í leiðinni og fengum okkur að borða. Takk fyrir allt, Gummi minn.
Ég var bara að vakna núna og er að fara að taka mig til fyrir vinnuna, en ég er svo þunnur að ég er að deyja. Ég borðaði samt áður en ég fór að sofa, ég tannburstaði á mér tunguna og drakk mikið vatn. Af hverju er ég svona þunnur?!
En allavega, ég er farinn að taka mig til fyrir vinnuna. Það verður víst mikið að gera í kvöld. Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (