Deila á Facebook
« Föstudagur - búinn snemma | Aðalsíða | HEADS »

Laugardagur - ofvirkur!
Skrifað mánud. 15. október 2007 - 02:04
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég fór bara að vinna líka, þar sem þetta var jú vinnuhelgin mín. Ég var hins vegar alveg skelþunnur þegar ég mætti í vinnuna!

Í kvöldmatnum troðfylltist staðurinn af leikhúsgestum, þó það hefði ekki verið nein Laddasýning. Það er greinilega komin önnur vinsæl leikhússýning.

Ég og Veigar, sem er að vinna með mér, vorum með 30 manna hóp, ásamt því að þurfa að sjá um restina af borðunum á stillingunum/svæðunum okkar, en það endaði þannig að ég þurfti að sjá um tvö borðin af þrem, af þessum 30 manna hópi, á meðan Veigar sá um eitt.

Þetta tók rosalega á og var ég alveg gjörsamlega búinn á því eftir að allir gestirnir voru farnir. Við Davíð skelltum okkur í sígó niður í bílakjallaranum í Kringlunni og dottaði ég víst þar, að hans sögn. Ég var gjörsamlega búinn á því!

Eftir þetta fór ég og fékk mér tvöfaldan Espresso, en seinna um kvöldið lét einn vinnufélagi minn mig fá tvær orkutöflur, sem áttu víst að svínvirka.

Ég komst allavega að því að það borgaði sig ekki að taka þessar töflur og líka að drekka tvöfaldan espresso, þar sem alla nóttina var ég titrandi og svitnandi, var mjög ör og leið bara mjög furðulega! Ég vann samt alla vaktina eins og maður.

Eftir næturvaktina (nei ekki sjónvarpsþáttinn) fór ég bara niður í bæ og náði í Grétar, Jóa og Brynju vinkonu hans, og skutlaði þeim tveim í Kópavoginn.

Eftir það fórum við Grétar bara heim til mín og horfðum á sjónvarpið og spjölluðum saman. Heitasta umræðuefnið var pólitík, en við ræddum m.a. um hvað það væri asnalegt að ef kjörtímabil forseta væri lokað fengi maður samt greidd laun út ævina. Svo töluðum við um þetta nýja borgarstjóramál, ásamt því að við fórum eitthvað út í fríverslun áfengis. Pólitískar umræður, bara gaman samt.

Svo þegar klukkan var langt farin að ganga 9 um morgun henti ég Grétari út og fór bara að sofa.



Ég er svo ekki búinn að vera að gera mikið síðan ég vaknaði, annað en að hugsa um það hversu grimm þessi tilvera er. Ekkert meira um það svo sem, annað en að það sökkar að vera svona mikil tilfinningavera.

En núna í kvöld er ég bara meira og minna búinn að vera að velja fyrir næstu önn í skólanum. Það vill svo skemmtilega til að ég er búinn með allt í kjarnanum, fyrir utan einn áfanga í stærðfræði, sem ég ætla mér að taka á næstu önn.

Núna ætla ég hins vegar bara að fara að sofa og reyna að hressa mig aðeins við. Segjum þetta bara ágætt í bili.




Athugasemdir ():