Fríverslun áfengis
Skrifað þriðjud. 16. október 2007 - 12:32Ég veit eiginlega ekki hvort ég sé með eða á móti því að verslun með áfengi verði gerð frjáls. Hvort vill maður frekar geta keypt bjór hvenær sem er sólarhrings og borga hærri skatta, þar sem ein helsta tekjulind ríkisins eru áfengis- og tóbaksverslanir ríkisins, eða að geta ekki keypt bjór hvenær sem er sólarhrings og borga þ.a.l. lægri skatta?
Ástæðan af hverju ég er að skrifa um þetta er sú að það er víst búið að leggja fram enn eitt frumvarpið um þetta mál. Alkinn innra með mér er alveg staðfastur á því að þetta skuli verða að raunveruleika á meðan efnahags-engillinn innra með mér segir mér að vera alfarið á móti þessu.

Þetta er jákvætt að mínu mati m.a. vegna þess að þetta gerir það að verkum að sala áfengis verður frjáls og því ekki háð neinum opnunartímum, ásamt því að þetta býður upp á meiri samkeppni á milli verslana og því á verðið án efa eftir að lækka, sem er bara jákvætt.
Þetta er neikvætt að mínu mati m.a. vegna þess að þessar ÁTVR verslanir eru ein helsta tekjulind ríkisins og ef einkasala ríkisins verður lögð af verður ríkið að finna aðra leið til að stemma stigum við tekjutapinu, og kemur það þá út á hærri sköttum og hugsanlega minni fjárveitingum til menntamála, löggæslu, framkvæmda, o.s.frv.
Ég veit bara satt að segja ekki hvað ég myndi velja ef ég fengi að ráða.

Athugasemdir (