Réttmæt aðgerð?
Skrifað þriðjud. 16. október 2007 - 18:42Þegar ég var búinn í skólanum ætlaði ég að labba að bílnum mínum en ég sá því miður ekki fagra sjón.
ÞAÐ VAR BÚIÐ AÐ DRAGA BÍLINN MINN!
Ég í algjöru sjokki fer og tala við húsvörðinn og bið hann um skýringu á þessu. Þá segir hann að ég hafi lagt ólöglega. Ég sé nú ekki að ég hafi lagt ólöglega, þó ég hafi augljóslega ekki lagt í stæði.

Ég lagði þar sem græna X'ið er, en áður en ég mætti voru tveir bílar lagðir þar sem rauðu X'in eru. Ég var að flýta mér mjög mikið þannig ég hélt þetta væri stæði, þar sem það var bíll fyrir framan og við báðar hliðarnar, þannig þetta leit út fyrir að vera stæði. Ég hefði náttúrulega tekið strax eftir því hefði þetta verið við gula línu, í fatlaðrastæði eða í vörumóttökustæði, en það var ekkert svoleiðis.
Ég hringdi í lögregluna og bað þá um að koma og skera úr um hvort þetta væri réttmæt aðgerð, en þeir sögðust ekki skipta sér að svona málum og neituðu að koma. Þeir sögðu að ég þyrfti bara að fara niður á stöð og leggja inn kæru ef ég vildi fá einhvern úrskurð í þessu máli.
Ég náttúrulega mjög pirraður strunsa niður í Vöku, borga bílinn út og keyri mjög pirraður í burtu.
Ég vil endilega fá að vita hvort ég geti gert eitthvað í þessu, þar sem þessi 10.000 kall hefði getað farið í eitthvað mun gáfulegra en þetta rugl. Ég lagði ekki einu sinni ólöglega!
Og hvað þegar það er kominn snjór? Maður sér náttúrulega þessa gulu kanta þegar það er vetur en ekki þessar hvítu línur. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt.
Ef ég get ætla ég alla leið með þetta mál.

Athugasemdir (