Deila á Facebook
« Jarðfræðiferð | Aðalsíða | Helgin - edrú á Sólon! »

Bjórkvöld og skemmtilegur leikur
Skrifað laugard. 20. október 2007 - 00:06
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég kíkti aðeins á Sólon í gær með Gumma. Ég ákvað bara eftir dansinn að vera bara edrú vegna peningaleysis en þá sagðist Gummi vera búinn að redda okkur fari niður í bæ og allt, þannig ég varð bara að fá mér að drekka. Takk fyrir kvöldið og bjórinn, Gummi minn.

Ég kom heim klukkan 2 um nóttina og fór bara beint að sofa. Ég var mjög drukkinn en tók mér hins vegar tíma í að fá mér mikið vatn og tannbursta á mér tunguna - en það dugði skammt! Ég vaknaði nefnilega ógeðslega þunnur. Ég var gjörsamlega að deyja.

Ég mætti í skólann og fór í lífsleiknitíma. Þar voru einhverjir aðilar frá kirkjunni mættir og ætluðu að gera eitthvað og bjóst ég svo við því að þetta yrði ógeðslega leiðinlegur tími - en hann endaði nú bara með að vera einn skemmtilegasti lífsleiknitími sem ég hef farið í.

Þeir settu upp einhvern svona leik, þar sem öllum bekknum var skipt í 4 lönd. Minn hópur var Frakkland, svo komu Bandaríkin, Tansanía og Bangladess. Svo voru umslög með ýmist blöðum, skærum, blýöntum, hringbogum, sirklum, o.s.frv. en fátækralöndin fengu svo lítið af verkfærum, á meðan við fengum svo mikið af þeim. Svo gekk leikurinn út á það að klippa út kassa, hringa, þríhyrninga og hálfhringa og selja. Svo gátum við skipt við hin löndin á pappír og verkfærum, fengið löndin til að vinna fyrir okkur gegn smá þóknun, o.s.frv.

Þetta var svolítill svona raunveruleikur til að gera okkur grein fyrir því hvernig þetta væri í dag. Við enduðum í öðru sæti en Bandaríkin unnu keppnina. Svo í lokin fóru allir út úr stofunni og endurröðuðu þeir borðunum inni í stofunni og settu Bandaríkin og Frakkland saman í stórum hóp og hin löndin allstaðar í kring. Svo var sett nammiskál á mitt borðið hjá okkur og fengu hin löndin ekki neitt. Þetta var bara gaman, en það er kannski út af því að það var gert svo vel við okkur en ekki fátækralöndin.

Virkilega skemmtilegt!



Hvað varðar myndirnar úr jarðfræðiferðinni, þá eru þetta ekkert allt of spennandi myndir þannig ég ákvað að sleppa því að setja þær hingað inn. Þetta voru bara myndir af einhverjum náttúrufyrirbærum sem er ekkert allt of spennandi.



Ég er ennþá svolítið ónýtur eftir gærkvöldið þannig ég hugsa að ég drekki nú ekki mikið í kvöld, en ég lofaði Gumma víst að kíkja niður í bæ með honum núna. Þannig ég ætla að drífa mig í sturtu og í jakkafötin.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():