Deila á Facebook
« Bjórkvöld og skemmtilegur leikur | Aðalsíða | Samloka dauðans »

Helgin - edrú á Sólon!
Skrifað mánud. 22. október 2007 - 04:10
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Helgin var bara í heild sinni ágæt, en ég var bara edrú á föstudeginum en svo fékk ég mér smávegis í aðra tánna á laugardeginum.

Á föstudaginn skellti ég mér niður í bæ með strákunum, en þar sem ég var svo handónýtur eftir fylleríið á fimmtudaginn ákvað ég bara að vera edrú og keyra strákana.

Það var helvíti þægilegt að geta farið eftir út eftir lokun í bænum og keyrt löglega heim. Ég mæli með því að fólk geri þetta svona inn á milli, mjög fínt bara.

Eftir djammið komum við, við á Subway og fengum okkur að borða. Við urðum vitni að stórskemmtilegum viðburði þar, en einhver gaur hafði dáið áfengisdauða inni á klósettinu á meðan hann var að gera nr. 2, og í kjölfari af því komu löggan, sérsveitin og fjölskylda gaursins. Greyið!

En á Subway vorum við að skoða Séð&Heyrt. Grétar stóð á móti okkur þannig hann las blaðið á hvolfi, og sá einhverja fyrirsögn með Kalla Bjarna, og las út úr fyrirsögninni: „Kalli Bjarni - edrú á Sólon“. Við þetta dóum við úr hlátri, þar sem það var bara svo fyndið að hugsa til Kalla Bjarna edrú á Sólon. Þetta var bara eitthvað moment!

Svo á meðan við vorum að hlæja að þessu öllu saman labbaði einhver ofursvalur sérsveitargaur fram hjá okkur með Hraun súkkulaði í hliðarvasanum. Þá sagði Gummi upphátt að hann væri með Hraun í vasanum og þá skammaðist hann sín svo mikið að hann ýtti Hrauninu neðar í vasann. Við þetta dóum við úr hlátri.

Eftir þetta skutlaði ég strákunum bara heim og fór svo sjálfur heim að sofa. Takk fyrir kvöldið, Grétar og Gummi!

Á laugardaginn ákvað ég svo að drekka. Kvöldið byrjaði ekkert allt of vel, þar sem ég svaf yfir mig og komst þ.a.l. ekkert í ríkið. Mamma var samt svo góð að hún gaf mér 8 litla Thule í gleri og gaf ég Grétari 4 af þeim - af einskærri góðvild minni!

Við kíktum heim til Gumma, en strákarnir voru bara í Pro Evolution. Þeir sem voru þarna: Gummi, Gaui bro, Steini, Jón, Elli og Binni. Svo auðvitað ég og Grétar.

Planið um kvöldið var að kíkja aðeins til Gumma, svo í afmælið til Ingu og svo bara niður í bæ, en það fór eitthvað úrskeiðis, þar sem við héngum bara heima hjá Gumma þangað til klukkan var orðin of margt til að fara í afmælið, þannig við fórum bara frá Gumma niður í bæ.

Um kvöldið heima hjá Gumma þegar flestir voru farnir fóru ég, Grétar, Gummi og Gaui bro í póker og var það mjög gaman. Grétar endaði svo með að vinna spilið.

Jökull og Solla kærastan hans kíktu svo á okkur þarna um kvöldið, en þau stoppuðu bara í nokkrar mínútur. Ég skil það svo sem alveg, þar sem við létum Jökul ekki vita af því að við vorum heima hjá Gumma, og einmitt stuttu eftir að þau komu vantaði okkur far niður í bæ þannig þau voru fljót að láta sig hverfa. Leiðinlegt bara að hafa gleymt að láta Jökul vita.

Þegar við ákváðum að fara niður í bæ vantaði okkur far. Helgi, Andri og Jói kíktu á okkur, en Helgi var edrú á bíl. Það var þá þannig að það var pláss fyrir tvö í viðbót með Helga, þannig ég leit á það svo að ég yrði að redda mér sjálfum niður í bæ.

Ég hringdi þá í Hildi vinkonu mína og bað hana um að skutla mér og Grétari, þar sem ég nennti ekki einn niður í bæ. Hún var meira en til í það og bjargaði mér gjörsamlega. Ég vil bara þakka Hildi kærlega fyrir.

Eftir að við Grétar komum niður í bæ hittum við Hildi vinkonu Grétars og vinkonu hennar. Við fórum á Pizza Pronto og fengum okkur að borða, þar sem við vorum báðir að deyja úr hungri.

Við Grétar vorum báðir bláedrú. Við höfðum náttúrulega bara drukkið þessa 4 bjóra á 3-4 tímum, þannig við urðum að gera eitthvað róttækt í því, þar sem við áttum báðir mjög lítinn pening.

Við tókum þá leigubíl á Kringlukránna, þar sem ég gat skrifað á mig þar. Það var mjög fínt!

Í stuttu máli það sem gerðist þar: Ingvar kom, ég lét henda einhverri þýskri konu út fyrir að henda glerglasi af svölunum, einhver 25 ára löggugella dansaði við Grétar og sagði að hann væri ógeðslega sætur, og svo fórum við bara aftur niður í bæ - aðeins fyllri en við vorum áður.

Einhver vinkona hans Ingvars, hún Lilja, skutlaði okkur svo niður í bæ. Takk fyrir það, Lilja.

Já já, svo var það bara þetta venjulega sem gerðist niðri í bæ: Djammað, djúsað og dansað!

Í lok kvöldsins þegar lokaði á Sólon ákvað ég að fara á barinn og fá mér Baccardi Razz í Sprite, en barþjónninn sagði að ég fengi bara flöskubjór eða skot. Ég varð þá frekar pirraður og sagði honum að ég væri bæði vinur Gumma og fastagestur þannig ég vildi fá drykkinn. Hann neitaði og náði ég þá í Gumma. Gummi kom og bað um drykkinn en hann neitaði Gumma líka, þannig ég var ekki par sáttur við gaurinn. Ég reifst rosalega í honum og sagði að það væri gert vel við þá sem væru fastagestir þarna. Ég var samt ekki með leiðindi við hann, þ.e. kallaði hann aldrei fífl, hálfvita, eða neitt svoleiðis. Ég var bara ákveðinn og rökræðinn - en kauði linaðist ekki.

Ég fór þá upp að sækja jakkann minn og hitti Binna snilling sem var að vinna á barnum uppi, og bað hann um að gefa mér Razz í Sprite svo ég gæti veifað því framan í gæjann niðri, en hann átti ekki Razz, þannig hann lét mig bara fá Sprite í glasi og sagði mér bara að segja honum niðri að þetta væri Razz í Sprite og að ég hefði fengið það sem ég vildi. Hahaha, gaurinn niðri var ekki sáttur og vildi fá að vita hver hefði látið mig fá þetta, sem ég sagði honum ekki.

Svo þarna í lokin eftir að ég var búinn að gera hann vel pirraðann og hann mig bað ég hann afsökunar og bað hann um að taka í höndina á mér en hann vildi það ekki, og var bara dónalegur og með leiðindi. Hehehe, bara fyndið.

Eftir þetta röltum við út af Sólon og fengum vin hans Ingvars til að skutla okkur heim.

Þetta var svona kvöld sem byrjaði hræðilega en rættist frábærlega úr! Takk bara kærlega fyrir kvöldið, Grétar, Gummi og Ingvar.

En allavega, segjum þetta ágætt í bili. Þetta er orðið allt of langt hjá mér ásamt því að klukkan er orðin allt of margt.

*** Bætt við 22.10.07 04:33 ***

Ég var nú rétt í þessu að renna yfir reikningsyfirlitið mitt og hvað sé ég? Helvítis leigubílstjórinn tvístraujaði kortið mitt á laugardaginn!





Athugasemdir ():