Deila á Facebook
« Helgin - edrú á Sólon! | Ađalsíđa | Stóru orđin »

Samloka dauđans
Skrifađ miđvikud. 24. október 2007 - 12:59
athugasemdir skrifađar - toppur / botn
Undanfarna daga hef ég á hverjum degi keypt mér samloku úti í sjoppu. Ţetta er sko engin venjuleg samloka.

Peningunum mínum hefur fariđ fljótt fćkkandi upp á síđkastiđ, en um má kenna endalausu drykkju- og djammstandi, ţannig mađur er alveg hćttur ađ tíma ađ splćsa í svona samloku á hverjum degi. Ţví ákvađ ég ađ gerast sniđugur og spara mér bćđi tíma og peninga međ ţví ađ reyna ađ búa til svona samloku heima.

Ég rölti út í búđ og keypti franskbrauđ, skinku, ost og sinnepssósu. Verst var ađ ţađ voru til tvenns konar sinnepssósur, ţannig ég keypti bara báđar (E.Finnsson og Gunnars). Bíddu, var ég ekki ađ spara? Svo keypti ég óvart 17% Gouda ost í stađinn fyrir 26%, en ég hélt ađ prósentan stćđi fyrir styrkleikanum á bragđinu og lyktinni en ekki mýktinni!

Allavega, ég mjög sáttur rölti heim og reyni ađ búa til svona guđdómlega samloku. Ţađ reyndist svolítiđ erfiđlega, ţar sem ţetta er gert á svolítinn spes hátt úti í sjoppu. Máliđ er ađ brauđiđ er ristađ og svo er áleggiđ steikt á pönnu (fyrir utan káliđ náttúrulega).

Ég er búinn ađ vera ađ gera nokkrar tilraunir á ţessu, bćđi međ ţví ađ örbylgja bara allt drasliđ og skella ţessu í samlokugrilliđ - en ég bara komst ekki međ tćrnar ţangađ sem hinar samlokurnar höfđu hćlana!

Ţađ var ekki fyrr en mamma kynnti mig fyrir ristapokanum frá Myllunni sem ég fór ađ finna rétta keiminn af ţessum guđdómlegu samlokum. Nú í dag get ég skellt skinku, osti og sinnepssósu á brauđ, skellt ţví svo í ţennan dásamlega ristapoka og skellt svo í ristina - án ţess ađ sósan og áleggiđ fari út um allt í ristavélinni.

Ég mćli hiklaust međ ţessu, algjör snilld!




Athugasemdir ():