Helgin 26. - 28. október
Skrifað mánud. 29. október 2007 - 04:20Þá er þessi vinnuhelgi liðin, en þó klukkan sé orðin ansi margt og ég með svakalegt mígreniskast ætla ég að skrifa um helstu atriði helgarinnar.
Á föstudaginn var ég voða lítið á barnum, þar sem ég ákvað að breyta til og vera að mestu leyti úti í sal. Það var bara mjög fínt.
Það var afskaplega mikið af freku og leiðinlegu fólki þarna um kvöldið en ég rakst hins vegar á mjög hresst fólk sem var að panta drykki hjá mér úti í sal. Þetta var líklegast fjölskylda, en það var ábyggilega einn pabbi, ein mamma, ein dóttir og einn frændi.
Ríki frændinn ætlaði að vera voða grand á því og bjóða allri fjölskyldunni í glas þannig hann fór að spyrja alla í fjölskyldunni hvað þau vildu. Svo þegar allir nema dóttirin voru búin að segja hvað þau vildu spurði ég dóttirina hvað hún vildi, og þá brutust út mjög vandræðaleg orðaskipti sem voru eitthvað á þessa leið:
Við þessi orð mín sprungu allir úr hlátri og ég varð enn vandræðalegri, sagði eitthvað til að loka samtalinu og kom mér í burtu hið snarasta.
En eftir vinnu ætlaði ég að vera rosa góður og skutla Grétari heim, þar sem hann var að djamma, en ég rakst á Ómar og Erlu Bjé á laugarveginum, og báðu þau mig um far - sem ég að sjálfsögðu veitti þeim.
Þegar við keyrðum niður laugarveginn sáum við einhvern sterabolta handan götunnar sem óð beinustu leið að bílnum mínum. Við vissum ekki alveg hvað hann væri að spá en það fór ekki á milli mála að hann væri á einhverju. Svo þegar hann kom að bílnum stoppaði hann aðeins fyrir framan bílinn og labbaði svo að bílnum og nuddaði sér eitthvað utan í hann. Eftir þetta keyrði ég mjög hægt í burtu en ég var skíthræddur um að hann myndi sparka eða kýla í bílinn. Ég hefði náttúrulega átt að bruna í burtu í staðinn fyrir að keyra svona hægt. En ég sá alveg að þetta var gaur sem ég hefði ekki ráðið við þannig ég gerði ekkert þegar hann byrjaði að nudda sér utan í bílinn. En hefði Grétar verið þarna hefði hann örugglega ekki leyft honum að komast upp með þetta.
Eftir þetta skutlaði ég bara Ómari og Erlu heim en Grétar vildi ekki koma með þar sem það var ekki pláss fyrir Ingvar. Svona er þetta, fjögurra manna bíll, því miður.
Á laugardaginn fór ég svo aftur að vinna en var á barnum um nóttina. Það var mjög mikið að gera og mun skemmtilegra fólk en kvöldið áður. Það er fínt svo maður verði ekki þunglyndur alla næstu viku.
En eftir vinnu kíkti ég aðeins á Sólon. Ég keyrði mjög hægt alla leiðina, enda var gífurleg hálka á götunum. Það bjóst enginn við þessu og að sögn viðskiptavina Kringlukráarinnar var fáránlega erfitt að fá leigubíl, þar sem flestir leigubílarnir voru ennþá á sumardekkjunum.
En ég komst loks á Sólon, lagði þar fyrir utan og dreif mig inn. Það var reyndar hætt að hleypa inn þegar ég kom en ég fékk samt að fara inn.
Ég skellti mér á efri hæðina og hitti þar Ingvar og Gumma. Svo eftir að Sólon lokaði beið ég eftir að Gummi væri búinn að taka til, þar sem hann bað mig um að skutla sér að bílnum sínum. Bíllinn hans var hjá Hjalta, þar sem hann hafði verið þar fyrr um kvöldið.
Á meðan ég sat þarna uppi og beið eftir Gumma varð ég vitni að svakalegum erjum. Það voru tveir vinir sem voru eitthvað að rífast sem endaði með því að allir dyraverðirnir á Sólon þurftu að stoppa þá, sem endaði með því að borðum var hvolft, glös voru brotin og að lokum gluggi var brotinn. Þetta var svakalegt en það voru 4-5 dyraverðir á einum gaurnum og þeir réðu voða lítið við hann. En eftir að hann braut rúðuna kom löggan og sjúkrabíll, þar sem hann skarst víst mjög illa við að kýla í gegnum rúðuna. Þetta var svakalegt!
En eftir að Gummi var búinn að ganga frá drifum við okkur bara inn í bílinn minn. Þá komu tvær stelpur að bílnum og báðu okkur um að skutla sér í Garðabæ fyrir 2000 kr., sem ég var engan veginn til. Ekki bara vegna bensíneyðslunnar heldur aðallega vegna hálkunnar sem var úti. Þetta endaði samt með því að ég skutlaði þeim fyrir 3000 kr. og gegn því að þær myndu borga allar skemmdirnar á bílnum mínum sem til gætu komið vegna hálkunnar.
Um leið og við vorum komnir vel áleiðis fann Gummi ekki bíllykilinn sinn þannig hann bað mig um að skutla stelpunum í Garðabæ og svo sér heim, svo hann gæti tekið bíl bróðir síns, þar sem hann var búinn að lofa að skutla einhverjum vinkonum sínum heim.
Þegar við vorum búnir að skutla stelpunum í Garðabæ var ein stelpan áfengisdauð og reyndist okkur ógeðslega erfitt að koma henni úr bílnum. Við Gummi vildum náttúrulega ekki draga hana úr bílnum þannig við leyfðum vinkonu hennar að díla við hana, sem henni tókst að lokum eftir mikið vesen. En svo var stelpan ekki með pening á sér þannig ég treysti henni fyrir því að leggja inn á mig með því að gefa henni reikningsnúmerið mitt - sem hún líka gerði.
Þessi stelpa var mjög kurteis og heiðarleg á allan hátt, á meðan vinkona hennar var ógeðslega leiðinleg og með stæla (áður en hún dó þ.e.a.s.), en ég vil bara þakka stelpunni fyrir að vera svona heiðarleg. Það er greinilega til heiðarlegt fólk í þessum heimi og það er nokkuð augljóst að góðvild, einlægni og heiðarleiki kemur manni lengra áfram, þar sem ég hefði ekki mikið skutlað leiðinlegu stelpunni hefði hún verið ein að biðja um far.
En þetta er orðið allt of langt en ég þarf að drífa mig að fara að sofa, þar sem ég er með hausverk dauðans og þarf að vakna í skólann eftir örfáa tíma. Segjum þetta ágætt í bili.

Ég: Hvað get ég fært þér?
Hún: Þig!
Frændi: Hún ætlar að fá tvöfaldan af þér.
*** Við þetta varð ég geðveikt vandræðalegur og missti út úr mér... ***
Ég: Tvöfaldan af mér? Því miður er ég bara einfaldur.

Athugasemdir (